Fyrsti ósigur Ramos

0
746

Tottenham tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Ramos þegar þeir fengu Birmingham í heimsókn. Leiknum lauk með 3-2 sigri Birmingham en bæði mörk Tottenham skoraði Robbie Keane, annað þeirra úr víti.

Ramos gerði tvær breytingar á liðinu og breytti um leikkerfi fyrir leikinn. Kaboul var búinn að jafna sig af meiðslum en í staðinn var Jenas kominn á sjúkralistann eftir samstuð við markmann Álaborgar á fimmtudaginn. Robinson var sem fyrr í marki og Chimbonda fór aftur í hægri bakvörðinn í stað Lee. Dawson og Kaboul voru miðverðir og Bale var í vinstri bakverði. Á miðjunni voru þeir Lennon, Zokora og Malbranque og frammi þeir Bent, Berbatov og Keane. Leikkerfið var 4-4-3 en Keane var þó aðeins fyrir aftan sóknarparið.

     Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn mun betur og áttu fyrstu hættulegu færi leiksins. Berbatov átti skot að marki sem Taylor varði og Keane átti þrumuskot að markinu eftir góða sendingu frá Bent en það fór vel yfir. Þeir þrír héldu áfram að vera ógnandi við mark Birmingham og voru líklegir til að skora. En gegn gangi leiksins voru það leikmenn Birmingham sem skoruðu fyrsta markið. McSheffrey var felldur af Kaboul inni í vítateig og þrátt fyrir misjafnar skoðanir manna á brotinu þá var Dowd ekki í vafa og dæmdi vítaspyrnu. McSheffrey tók vítið sjálfur og skoraði úr því og staðan var því orðin 0-1 fyrir Birmingham eftir 23.mínútna leik. Eftir markið breyttist leikurinn lítið, þ.e. Tottenham hélt áfram að ráða ferðinni og átti nokkur ágætisfæri en vörn Birmingham varðist vel. Hættulegasta færi Spurs í fyrri hálfleik kom á 36.mínútu þegar Bale tók aukaspyrnu vinstra megin fyrir utan teig, skaut beint að markinu en Taylor náði að verja með fingurgómunum. Staðan í hálfleik var þó 1-0 gestunum í vil.

     Líkt og í leiknum gegn Álaborg gerði Ramos tvær breytingar í hálfleik. Bent og Kaboul fóru af velli og í stað þeirra komu Defoe og Huddlestone. Zokora bakkaði þá í vörnina, Huddlestone fór á miðjuna og Defoe í framlínuna. Seinni hálfleikur byrjaði á svipaðan hátt og þeim fyrri lauk, sókn af hálfu Tottenham en Birmingham varðist vel. En þeir gátu lítið gert á 50.mín þegar Berbatov var kominn í gott færi en Djourou felldi hann innan teigs og Dowd dæmdi vítaspyrnu. Keane steig á vítapunktinn og skoraði örugglega framhjá Taylor.  Fimm mínútum síðar var Keane svo aftur á skotskónum. Huddlestone gaf frábæra sendingu inn í teiginn á Keane sem renndi boltanum framhjá Taylor. Staðan orðin 2-1 og í samræmi við leikinn enda Tottenham mun betra þegar þarna var komið sögu. Stuttu síðar hefði Tottenham átt að auka forystuna en stöngin var því miður fyrir. Berbatov fékk boltann inni í markteignum og skaut að markinu en eins og fyrr sagði fór boltinn í stöngina. Á tíu mínútna kafla breyttist leikurinn þó til muna. Fyrst á 62.mínútu fékk Jerome boltann og komst framhjá klaufalegri vörn Tottenham og skaut lágu skoti framhjá Robinson og jafnaði þar með leikinn 2-2. Ekki batnaði svo ástandið fyrir Tottenham á 67.mínútu þegar Keane tæklaði Muamba á miðjum vellinum. Dómarinn var viss í sinni sök, flautaði og dró upp rauða spjaldið og var Keane því rekinn af velli með beint rautt spjald. Í endursýningu má sjá að vissulega fer Keane í Muamba en erfitt er að færa rök fyrir því hví þetta verðskuldaði rautt spjald en ekki gult. Stuttu síðar kom svo enn eitt áfallið þegar Bale þurfti að fara meiddur af velli eftir samstuð við Muamba og inná kom Lee. Eftir þetta var róðurinn ansi erfiður fyrir leikmenn Tottenham og átti Birmingham hættulegri færi. Forssell átti skot í þverslánna og Kapo átti skot að marki sem Robinson varði vel. Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og allt stefndi í jafntefli. En á 92.mínútu skaut Larsson þrumu skoti af löngu færi framhjá Robinson og alveg í hornið á markinu. Glæsilegt mark hjá Larsson og var það nóg til að tryggja Birmingham öll stigin í leiknum. Lokastaðan því 2-3 Birmingham í vil.

     Ljóst er að töluverð vandræði eru í varnarleik Tottenham og verður það mikið verkefni fyrir Ramos að finna lausn á því. Staða liðsins í deildinni er ekki góð og er orðið ansi erfitt fyrir liðið að komast í evrópukeppnina gegnum deildina. Liðið situr eins og er í 16. sæti með 12 stig, 18 stigum frá 5.sætinum.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul (Huddlestone), Bale (Lee), Lennon, Zokora, Malbranque, Bent (Defoe), Keane, Berbatov.