Emil lék allan leikinn

0
868

Varaliðsleikur: Tottenham – Arsenal 4-3
Tottenham vann góðan sigur og öruggan á Arsenal í leik þessara liða í gærkvöldi. Við komumst í 4 -1 en gáfum eftir síðustu 15. mínúturnar. Emil okkar Hallfreðsson lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar. Hann stóð sig vel í leiknum en varð fyrir þ´vi óláni að fá boltan í hendina inni í teig. Arsenal skoraði úr vítinu og lagaði við það stöðuna í 4-2. Lee Barnard gerði þrennu í leiknum og er það hans önnur í röð. Hann lék þann leik líka gagn Derby í síðasta leik. Barnard er nú búinn að gera 17 mörk í 16 leikjum með varaliðinu. Spurning hvort hann ætti ekki að fá tækifæri með aðalliðinu. Burch lék að nýju í marki en hann hefur verið meiddur lengi.
Liðið: Burch; Dilevski, Mills, Lee, Hallfredsson; Limbersky, Jackson (Capt.), O’Hara (sub McKenna, 83), Yeates; Barnard, Malcolm
Varamenn: Eyre; Barcham, Daniels, Seanla. HJ