Tottenham áfram í deildarbikarnum

0
652

Tottenham er komið í undanúrslit Carling Cup eftir sigur á Manchester City á heimavelli þeirra. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og skoruðu þeir Jermain Defoe og Steed Malbranque mörk Tottenham í hörkuspennandi leik.

Ramos gerði eina breytingu á liðinu frá leiknum gegn Portsmouth en Defoe byrjaði í framlínunni í stað Bent sem var ekki í hópnum sökum meiðsla. Liðið var því þannig að Robinson var í marki, Chimbonda, Zokora, Kaboul og Lee voru í vörninni. Miðjan var skipuð þeim Lennon, Jenas, Boateng og Malbranque og frammi voru þeir Berbatov og Defoe.

Leikurinn hófst strax af mikilli hörku en leikmenn Tottenham virtust þó koma nokkuð ákveðnari til leiks. Eftir tvær tilraunir á upphafs mínútunum leiddi sú þriðja til marks hjá Tottenham. Á 5.mínútu gaf Jenas góða sendingu út á hægri kantinn á Lennon sem gaf svo góða sendingu fyrir markið og þar var Defoe mættur og kláraði færið af öryggi. Staðan orðin 0-1. Eftir markið hafði Tottenham yfirhöndina og átti góðan möguleika á að bæta við öðru marki nokkrum mínútum síðar. En á 20.mínútu breyttist leikurinn til muna. Zokora tæklaði Elano og fékk að launum rauða spjaldið sem þótti ansi harður dómur. Þetta var töluvert áfall fyrir Tottenham enda lítið liðið á leikinn. Þörf var að gera breytingu á liðinu og var Defoe tekinn út af svo hægt væri að bæta við varnamanni, en hann var ekki par sáttur enda ekki oft sem hann fær sæti í byrjunarliðinu. Gremja hans beindist þó að mestu að fjórða dómaranum sökum dómgæslu leiksins. Tainio kom inná fyrir Defoe og fór í hægri bakvörðinn í stað Chimbonda sem tók stöðu miðvarðar. Stuttu síðar átti Malbranque glórulausa tæklingu á Corluka sem hefði hugsanlega frekar verðskuldað rautt spjald frekar en tækling Zokora en dómarinn gaf honum einungis gult spjald. Berbatov átti svo gott skot að marki en svo fór City að komast meira og meira inn í leikinn og tóku yfirhöndina. Það sem eftir lifði hálfleiks sóttu Citymenn stíft að marki Tottenham en vörnin varðist vel og reyndi svo að koma boltanum við hvert tækifæri sem gafst fram á Berbatov sem spilaði einn frammi. Jenas og Lennon reyndu svo að koma honum til hjálpar en City átti mun fleiri sóknir en staðan var þó óbreytt í hálfleik 0-1.

Seinni hálfleikur var ekki ósvipaður síðari hluta fyrri hálfleiks. Citymenn reyndu til muna að nýta sér stöðu sína þar sem þeir voru manni fleiri og sóttu stíft að marki. Sóknir þeirra voru þó hálfmáttlausar þegar kom að sjálfum markskotum en Robinson átti þó markvörslu á heimsmælikvarða eftir skalla frá Vassell og greinilegt að ráðning Ramos hefur haft góð áhrif á hann. Hann virkar grennri, sneggri, öruggari og líkist æ betur sínu besta formi. City menn vildu fá vítaspyrnu þegar Chimbonda felldi Dunne inn í teig og má segja að þeir hafi haft nokkuð til síns máls enda fór Chimbonda í manninn en ekki boltann en dómarinn dæmdi ekkert og slapp því Tottenham við víti. Vörnin varðist vel en þau fáu færi sem Tottenham fékk nýttust ekki. Á 71.mín kaus Ramos að gera skiptingu og tók Lennon af velli. Inná kom Jamie O´Hara sem stóð sig prýðilega í síðasta leik þegar hann kom inná sem varamaður og átti þátt í markinu gegn Portsmouth. Enn hélt þó City áfram að sækja og var skot frá þeim varið á marklínu af Kaboul eftir að Robinson hafði náð að koma við boltann.  En það var svo á 83.mínútu að næsta mark leiksins kom og var það Tottenham sem bætti við en ekki City að jafna. Berbatov kom boltanum út á vinstri kantinn á O´Hara sem hafði tekið stöðu Malbranque þar, en hann hafði fært sig yfir á hægri kantinn. O´Hara gaf svo frábæra sendingu á Malbranque sem lék á varnarmann og kom boltanum framhjá Hart í markinu. Staðan orðin 0-2 og útlitið orðið gott fyrir leikmenn Tottenham. Á 87.mín fór Malbranque svo af velli í stað Huddlestone sem fékk að spreyta sig í nokkrar mínútur. Berbatov átti svo dauðafæri undir lok leiksins, kominn maður á mann gegn markverðinum en Hart las skot hans vel og varði. En mörkin urðu ekki fleiri og lauk leiknum því með sigri Tottenham en þetta var fyrsti tapleikur City á heimavelli á þessari leiktíð. Það sem gerir þennan sigur enn sætari var að baráttan skilaði sigrinum í höfn því þrátt fyrir að vera manni færri í 70 mínútur þá gáfust leikmenn Tottenham aldrei upp og uppskáru því sigur. Tottenham er því komið í undanúrslit deildarbikarsins en dregið verður í næstu umferð að loknum leik Liverpool og Chelsea.

Lið Tottenham: Robinson, Chimbonda, Zokora (rautt), Kaboul, Lee, Lennon (O´Hara), Jenas, Boateng, Malbranque (Huddlestone), Berbatov, Defoe(Tainio). Ónotaðir varamenn: Cerny, Taarabt.