Tottenham mæta Arsenal í undanúrslitum

0
645

Dregið var í undanúrslit Deildabikarsins í Englandi eftir að síðasta leik fjórðungsúrslitanna lauk á miðvikudagskvöld. Tottenham munu mæta Arsenal á meðan í hinum leiknum munu Chelsea og Everton mætast. Leikirnir munu fara fram heima og að heiman dagana 8/9 janúar og 22/23 janúar.

Fyrri leikur Spurs og Arsenal mun fara fram á heimavelli Arsenal , Emirates Stadium. Þetta er kjörið tækifæri fyrir Spurs að sigra bikarkeppni, en þeir hafa ekki unnið bikar síðan 1999 þegar liðið vann einmitt Deildabikarinn undir stjórn George Graham.