Tap í N-Lundúna slagnum

0
624

Tottenham tapaði sínum fyrsta útileik undir stjórn Ramos þegar þeir heimsóttu Arsenal á Emirates leikvanginn. Leikir milli þessara liða eru ávallt spennandi enda lítill kærleikur þar á milli. Leiknum lauk með 2-1 sigri Arsenal en mark Tottenham skoraði Berbatov og var það glæsilegt mark.

     Ramos gerði töluverðar breytingar á liðinu frá síðasta leik. Robinson var þó sem fyrr í marki enda staðið sig vel undanfarið og nálgast sitt fyrra form. Tainio lék í hægri bakverði sökum meiðsla í miðri vörninnni en miðverðir dagsins voru þeir Chimbonda og Kaboul og Lee var í vinstri bakverði. Ramos kaus að stilla upp 5 manna miðju og þar voru þeir Lennon, Boateng, Keane, Malbranque og O´Hara sem var að byrja inná í fyrsta skipti. Sökum fimm manna miðju spilaði Berbatov aðeins einn frammi.

     Eins og ávallt í leikjum milli þessara liða var mikil spenna í loftinu fyrir leikinn. Arsenal átti möguleika á að komast yfir á upphafsmínútum leiksins en skot Flamini fór yfir. Nokkrum mínútum síðar átti Malbranque svo góða sendingu á Lennon sem gaf boltann fyrir markið en Berbatov rétt missti af boltanum. Leikurinn hélt svo áfram og bæði lið pressuðu án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Á 35.mínútu fékk Eboue þó gott færi en Robinson, sem nálgast sitt gamla góða form, varði glæsilega. Berbatov, Keane, Lennon og Boateng áttu allir hálffæri og Robinson sá um að halda boltanum frá markinu hinum megin á vellinum. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik og því staðan 0-0 í leikhléi.

     Seinni hálfleikur hófst þó ekki vel. Lið Tottenham virtist ekki alveg komið í gang við upphafs flaut dómarans og eftir 2 og hálfa mínútu skoraði Arsenal fyrsta mark leiksins. Rosiscky gaf sendingu á Fabregas sem gaf svo hælspyrnu í áttina að Adebayor sem kom boltanum framhjá Robinson. Á 60.mínútu kom fyrsta skiptingin frá Ramos. Boateng fór af velli og inná kom Huddlestone. Fjórum mínútum síðar gaf Lennon boltann fyrir markið á Keane sem skaut góðu skoti að marki en boltinn fór beint í þverslánna. Tveimur mínútum síðar fór þó boltinn framhjá Almunia í marki Arsenal. Kaboul sendi boltann að Keane sem var kominn upp að marklínu, hann gaf hælsendingu á Berbatov sem var líka mjög nálægt endalínunni en náði þó að skjóta að marki og skora. Glæsilegt mark og staðan því orðin jöfn 1-1. Við þetta mark jókst sjálfstraust leikmanna Tottenham og þegar 20 mínútur voru til leiksloka dæmdi Styles vitaspyrnu á Arsenal. Toure braut á Berbatov innan teigs og dæmt var réttilega víti. Keane steig á vítapunktinn og skaut eins og svo oft áður neðst í vinstra hornið en Almunia sá við honum og varði skotið. Fimm mínútum síðar fór Keane svo af velli og inná kom Defoe. Örfáum sekúndum síðar komst Arsenal svo yfir á nýjan leik. Fabregas tók hornspyrnu og Bentner sem hafði komið inná á sama tíma og Defoe hoppaði upp og skallaði í markið framhjá Robinson. Á 80.mínútu kom svo Taarabt inná fyrir Lee og eftir 3 mínútur á vellinum var hann tæklaður inni í teig og hefðu einhverjir dómarar dæmt víti en Styles gerði það þó ekki. Leikmenn Tottenham gerðu allt sem þeir gátu til að reyna að jafna leikinn en það tókst ekki í þetta skipti. Leiknum lauk því með sigri Arsenal 2-1 í jöfnum og spennandi leik. Liðin mætast á ný eftir tæpar 3 vikur í deildarbikarnum og verður spennandi að fylgjast með þeirri viðureign en þá er leikið bæði heima og heiman.

Lið Spurs: Robinson, Tainio, Kaboul, Chimbonda, Lee (Taarabt), Lennon, Boateng (Huddlestone), Malbranque, O´Hara, Keane (Defoe), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Archibald-Henville.