Það má segja að leikmenn spurs hafi kvatt leikárið með flugeldasýningu á White Hart Lane í dag og leikmenn Reading lögðu svo sannarlega sitt af mörkum til að gera hana enn betri. Alls litu 10 mörk dagsins ljós en leiknum lauk með sigri Tottenham 6-4. Mörk Tottenham skoruðu þeir Dimitar Berbatov (4), Steed Malbranque og Jermain Defoe.
Ramos gerði aðeins eina breytingu á liðinu frá Fulham leiknum en Jenas var orðinn góður af meiðslum sínum og kom inn í liðið í stað O´Hara. Robinson byrjaði í marki, Chimbonda, Kaboul, King og Lee spiluðu í vörninni. Miðjan var skipuð þeim Lennon, Jenas, Huddlestone, Malbranque og frammi byrjuðu þeir Keane og Berbatov.
Leikurinn fór rólega af stað en fljótlega fór fjör að færast í leikinn og leikmenn Tottenham litu út fyrir að vera líklegri til að skora. Fyrsta skot Tottenham að marki kom þó mörgum á óvart en það var enginn annar en Lee sem átti það skot en Hahnemann varði vel. En það var ekki löng bið eftir fyrsta markinu og var það Berbatov sem skoraði það. Markið kom á 6.mínútu leiksins eftir að Malbranque gaf boltann fyrir á Keane sem sendi boltann á Berbatov og átti hann ekki vandræðum með að koma boltanum í netið. Gleðin varði þó ekki lengi, eða aðeins í 9 mínútur. Shorey tók aukaspyrnu og gaf fyrir markið og þar kom Robinson og kýldi boltann. Sökum þess að leikmenn voru fyrir framan hann þá náði hann ekki að kýla boltann með nægum krafti og endaði boltinn beint fyrir framan fætur Cisse sem skaut boltanum framhjá þvögunni sem og Robinson og í netið. Mark þetta kom eins og blaut tuska í andlit leikmanna Spurs enda gjörsamlega gegn gangi leiksins. Markið var hins vegar eins og vítamín fyrir leikmenn Reading og gerðust þeir ansi ágengir eftir að hafa jafnað. Tíu mínútum fyrir leikslok áttu þeir möguleika á að komast yfir úr aukaspyrnu en hættulegasta færið fram að hálfleik átti Tottenham þó. Berbatov gaf góða sendingu fyrir markið frá hægri kantinum og þar var Keane vel staðsettur beint fyrir framan markið en hitti ekki boltann og fór boltinn því framhjá. Staðan í hálfleik var því jöfn 1-1.
Strax í upphafi seinni hálfleiks áttu bæði lið fín færi. Keane átti gott skot að marki og Chimbonda rétt náði að koma í veg fyrir að Kitson næði að skjóta framhjá Robinson á hinum vallarhelmingnum. En á 52.mínútu komst Reading yfir með marki frá Ívari Ingimarssyni. Shorey tók hornspyrnu sem Ívar skallaði í netið framhjá Robinson og stuttu síðar hefðu þeir geta bætt við marki en Robinson varði vel. Leikmenn Tottenham virtust hálf slegnir út af laginu og smá pirringur kominn í liðið. Á 60.mínútu gerði Ramos sína fyrstu skiptingu þegar hann tók Ledley King útaf og setti Defoe inná. King virtist hálf undraður yfir þessari ákvörðun en Ramos hefur þó beitt þeirri taktík áður að taka varnarmann útaf fyrir sóknarmann og sökum meiðslasögu King hefur Ramos viljað að hann tæki því rólega. Stuttu síðar þurfti Robinson enn einu sinni að vera á varðbergi þegar Hunt átti gott skot að marki en Robinson varði vel. Bros færðist yfir andlit stuðningsmanna Spurs á 62.mínútu þegar Defoe gaf lágan bolta fyrir markið, Shorey kom boltanum ekki lengra frá en til Berbatov sem þakkaði pent fyrir sig með því að skora með þrumuskoti í þaknetið. Ramos kaus þá að gera aðra skiptingu og tók Lennon út af en inná kom Boateng. Einungis 2 mínútur liðu þar til næsta mark leit dagsins ljós. Reading fékk hornspyrnu sem Shorey tók sem fyrr og Kitson skallaði boltann við nærstöngina og í þaknetið og kom liðinu yfir 2-3. En leikurinn var þó langt frá því að vera búinn. Á 71.mínútu tók Jenas hornspyrnu og gaf fyrir á fjarstöngina og þar skallaði Chimbonda boltann í áttina að Berbatov sem skoraði sitt þriðja mark í leiknum og fyrstu þrennu Tottenham frá því á þarsíðasta tímabili. Á þessum tímapunkti fór leikurinn að líkjast meira handboltaleik heldur en fótboltaleik því hver sókn endaði með marki. Næsta sókn Reading á 74.mínútu endaði með marki Kitson eftir frábæra sendingu frá Hunt. Og á 76.mínútu leiddi samspil Lee og Huddlestone til þess að Malbranque fékk boltann inn í teig og kom hann sér í skotstöðu og skaut boltanum framhjá Hahnemann í markinu. Tveimur mínútum síðar var Keane svo felldur inni í teig af Sonko og Stroud, dómari dagsins, dæmdi víti. Keane steig á vítapunktinn þrátt fyrir að hafa ekki skorað úr vítinu gegn Arsenal en sagan endurtók sig og Hahnemann varði vítið. Boltinn fór þó aftur út í teiginn og þar var Defoe mættur og skallaði boltann í netið. Staðan orðin 5-4 fyrir Tottenham eftir 5 mörk á innan við tíu mínútum. En leiknum var þó ekki lokið og Berbatov var enn einu sinni ógnandi fyrir framan markið. Á 82.mínútu sendi Kaboul sendingu fram á Berbatov sem skaut að marki og skoraði framhjá Hahnemann og var það fjórða mark hans í leiknum og var hann án nokkurs vafa maður leiksins. Leiknum lauk því með sigri Tottenham 6-4 í æsispennandi leik. Liðin mætast á ný að viku liðinni en það er leikur í þriðju umferð FA bikarsins.
Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Kaboul, King(Defoe), Lee, Lennon(Boateng), Jenas, Huddlestone, Malbranque, Keane(Tainio), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Taarabt.






