Tap á Villa Park

0
663

Tottenham byrjaði nýja árið illa þegar þeir heimsóttu Aston Villa á Villa Park. Leiknum lauk með sigri Villa, 2-1 en Jermain Defoe skoraði mark Tottenham. Tottenham lenti undir en Defoe jafnaði 11 mínútum fyrir leikslok. Það dugði hins vegar ekki því Villa skoraði sigurmarkið á 85.mínútu og hirti öll stigin.

     Ramos gerði töluverðar breytingar á liðinu og eflaust var verið að hvíla nokkra lykilmenn. Robinson var þó sem fyrr í marki, Zokora tók stöðu hægri bakvarðar og Dawson kom tilbaka og var í miðju varnarinnar ásamt Kaboul. Lee var sem fyrr í vinstri bakvarðarstöðunni enda hinir tveir í langtímameiðslum. Miðjan var skipuð þeim Lennon, Jenas, Boateng og Malbranque og frammi voru þeir Berbatov og Defoe en sá síðarnefndi hefur verið í stuði undanfarið og verðskuldaði sætið fyllilega. Á bekknum voru þeir Cerny, O´Hara, Taarabt, Huddlestone og Keane.

     Villa byrjaði leikinn betur og áttu möguleika á að komast yfir strax á 5. mínútu en Moore skaut yfir markið. Stuttu síðar var hætta á ferð á ný þegar Young tók aukaspyrnu sem Robinson náði að verja í teiginn og Jenas náði svo að komast í boltann og hreinsa. Young, Agbonlahor og Moore héldu leikmönnum Tottenham við efnið en aðrir leikmenn þeirra hjálpuðu vissulega til og á 24.mínútu var Laursen óvaldaður í markteig sökum varnarmistaka en skaut boltanum yfir markið. Leikur Villa var ansi harður og var mikið um smá pústra. Tottenham reyndi sitt besta til að sækja en sóknirnar voru fyrirsjáanlegar og áttu þeir ekki skot að marki fyrsta hálftímann í leiknum. Fimm mínútum fyrir leikhlé leit svo fyrsta markið dagsins ljós. Boateng braut klaufalega á Villa manni rétt fyrir utan vítateiginn vintra megin. Young tók aukaspyrnuna og Mellberg var einn og óvaldaður inni í teig og skallaði framhjá Robinson. Klaufaleg varnarmistök hjá vörn Tottenham og Villa komið yfir 1-0. Stuttu síðar fékk Berbatov upplagt færi til að jafna leikinn en skaut beint á Carson. Staðan var því 1-0 í hálfleik, Villa í vil.

     Ramos kaus að gera skiptingu strax í hálfleik enda liðið ekki að spila vel í fyrri hálfleik og ekki að skapa sér nein færi að ráði. Huddlestone kom inná í stað Boateng og hann var ekki lengi að koma sér í gírinn því á upphafsmínútunum átti hann þrumuskot utan að velli en boltinn fór framhjá markinu. Á 52.mínútu kom svo önnur skipting þegar Lennon fór af velli í stað Keane og stuttu síðar kom O´Hara inná fyrir Kaboul. Allar þrjár skiptingarnar komnar og hálftími eftir af leiknum. Með þessum skiptingum breytti Ramos leikkerfinu þar sem Zokora, Dawson og Lee skipuðu þriggja manna varnarlínu og Jenas og O´Hara spiluðu á köntunum. O´Hara komst í ágætismarkfæri stuttu eftir að hann kom inná en ekki fór boltinn inn. Við skiptingarnar breyttist leikur Tottenham til muna og náðu þeir nokkurri stjórn á leiknum. Villa átti þó hættulegt færi sem Moore klúðraði. Keane vildi fá vítaspyrnu í seinni hálfleik eftir samstuð við Davies og Laursen en dómarinn var ekki á sama máli og boltinn barst að lokum til Malbranque sem skaut framhjá. En á 79.mínútu kom loksins jöfnunarmarkið sem lá í loftinu. Dawson vippaði inn í teig en það var skallaði í burtu en lenti beint á hausnum á Berbatov sem skallaði til Defoe og hann kláraði færið af miklu öryggi. En gleðin lifði ekki lengi og enn einu sinni voru föstu leikatriðin okkur dýrkeypt. Barry tók hornspyrnu fyrir Villa og Laursen skallaði boltann óvaldaður í markið. Leikmenn Spurs reyndu að koma til baka en það tókst ekki og lokastaðan því 2-1 fyrir Aston Villa.

     Greinilegt er að vandamálið með föstu leikatriðin er enn til staðar og er orðið ansi langþreytt vandamál. Fimm af síðustu sex mörkum sem liðið hefur fengið á sig í síðustu tveimur leikjum hafa komið úr föstum leikatriðum og það er eflaust stærsta verkefni Ramos og Poyet á næstunni, að laga varnarleikinn í föstum leikatriðum.

 

Lið Spurs: Robinson, Zokora, Dawson, Kaboul(O´Hara), Lee, Lennon(Keane), Jenas, Boateng(Huddlestone), Malbranque, Berbatov, Defoe. Ónotaðir varamenn: Cerny, Taarabt.

DEILA
Fyrri fréttÁramótakveðja
Næsta fréttJafnt í FA bikarnum