Jafnt í FA bikarnum

0
661

Tottenham og Reading skildu jöfn í viðureign sinni í 3.umferð FA Cup og þurfa því að mætast á ný þann 15.janúar á heimavelli Reading. Leiknum lauk 2-2 en bæði mörk Tottenham skoraði Dimitar Berbatov, annað úr vítaspyrnu, og er því kominn með samtals 13 mörk í öllum keppnum á tímabilinu.

     Ramos stillti upp ansi sterku liði en Reading hvíldi nokkra lykilmenn. Í marki hjá Spurs var Robinson sem fyrr, vörnin var skipuð þeim Chimbonda, Dawson, King og Lee. Á miðjunni spiluðu Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi voru þeir Berbatov og Keane. Á bekknum voru Cerny, Gunter, Huddlestone, Taarabt og Defoe.

     Tottenham hóf leikinn af fullum krafti og strax á fyrstu mínútu þaut Lennon upp völlin og gaf sendingu fyrir sem var aðeins og löng fyrir Keane. Berbatov átti einnig færi á 3.mínútu en skaut vel yfir. Á 5.mínútu kom hins vegar dauðafæri sem fór forgörðum. Malbranque gaf boltann á Berbatov úti á hægri kantinum sem þaut upp völlinn og gaf svo fyrir markið. Þar var Keane aleinn beint fyrir framan opið markið þar sem markvörður Reading var nánast við stöngina en Keane skaut rétt framhjá. En fyrsta markið kom hins vegar ekki fyrr en á 25.mínútu og voru það Reading menn sem komu boltanum yfir línuna. Reyndar eru menn ekki sammála um það hvort boltinn hafi í raun farið yfir línuna en línuvörðurinn dæmdi mark og það stóð. Hunt tók aukaspyrnu og skaut beint að markinu. Robinson greip boltann en datt inn í markið og þrátt fyrir tilraun til að halda boltanum fyrir utan var mark dæmt og Reading því komið yfir 0-1. En líkt og í leik liðanna í lok ársins 2007 tók ekki langan tíma fyrir Spurs að jafna. Á 28.mínútu gaf Lennon boltann á Berbatov sem var ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Federici í markinu. Berbatov fékk svo tækifæri stuttu síðar til að koma Tottenham yfir en það tókst ekki. Jenas átti líka dauðafæri á 34.mínútu en Federici varði boltann og stuttu síðar átti Malbranque tvö færi sem reyndust þó ekki hættuleg. Jenas fékk svo annað dauðafæri rétt áður en flautað var til hálfleiks en Federici sá enn og aftur við honum. Staðan í hálfleik var því jöfn 1-1.

     Eftir einungis þriggja mínútna leik í síðari hálfleik var Tottenham komið yfir. Keane fékk boltann inni í teig en Rosenior felldi hann og dómarinn dæmdi víti. Þar sem Keane hefur ekki gengið sem best í vítunum undanfarið þá steig Berbatov á vítapunktinn í þetta skiptið og skoraði framhjá Federici sem fór þó í rétt horn en náði ekki að verja. Keane skoraði svo mark sem var dæmt af og átti annað gott færi eftir fyrirgjöf frá Chimbonda en kom þó boltanum ekki í netið. Á 63.mínútu fór hann svo af velli og í staðinn kom Adel Taarabt. Berbatov og Taarabt áttu góðan möguleika á að bæta við forskotið en Federici stóð sig vel í markinu. Á 77.mínútu fengu leikmenn Spurs að kenna á því að hafa ekki nýtt sín dauðafæri þegar Hunt jafnaði leikinn fyrir Reading. Lita átti gott skot að marki sem Robinson varði en boltinn fór aftur út í teiginn þar sem Hunt náði honum og kom honum framhjá Robinson. Stuttu eftir jöfnunarmarkið kom Huddlestone inná í stað Malbranque. En hann var þó ekki lengi á vellinum, eða rétt rúmar þrjár mínútur þar sem Clattenburg gaf honum beint rautt spjald fyrir að skalla Bobby Convey. Þeir voru að kljást um boltann og féllu við og er þeir stóðu upp snerti Huddlestone Convey með hausnum sem virtist ekki svo alvarlegt. En Clattenburg var á öðru máli og rak hann í sturtu. Fleiri mörk voru þó ekki skoruð og því þurfa liðin að mætast á ný þann 15.janúar á heimavelli Reading.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, King, Lee, Lennon, Jenas, Zokora, Malbranque(Huddlestone), Keane(Taarabt), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Gunter, Defoe.