Tottenham sigraði Sunderland á White Hart Lane í hörkuleik sem bauð upp á spennu frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Leiknum lauk með 2-0 sigri Spurs og voru það þeir Lennon og Keane sem skoruðu mörk Tottenham en markið hjá Keane var 100. mark hans fyrir félagið í öllum keppnum.
Ramos gerði töluverðar breytingar á liðinu frá síðasta leik og hefur hann eflaust haft bikarleikinn á þriðjudaginn í huga við liðsvalið. Sumir hafa eflaust haft gott af smá hvíld en í marki byrjaði þó Cerny enn á ný enda staðið sig með prýði undanfarið. Varnarlínan var skipuð þeim Stalteri, Dawson, Huddlestone og Lee og á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Boateng og O´Hara. Frammi byrjuðu þeir Defoe og Berbatov en Keane var á bekknum ásamt þeim Robinson, Chimbonda, Tainio og Danny Rose sem hefur staðið sig vel með varaliðinu og var því í hópnum í dag.
Defoe leiddi lið Spurs út á völlinn sem fyrirliði dagsins og strax frá fyrstu snertingu var líf og fjör í leiknum og áhorfendur á White Hart Lane þurftu ekki að bíða lengi eftir marki. Strax á annarri mínútu vann O´Hara boltann á vinstri kantinum og eftir gott samspil við Lee kom hann boltanum fyrir markið þar sem Berbatov náði að koma við boltann og koma honum lengra fyrir markið þar sem Lennon kom á ofurspretti og kom boltanum framhjá Gordon í marki Sunderland. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham. Lennon kom svo við sögu síðar þar sem boltinn barst frá honum í hönd Yorke en hvorki dómari né aðstoðardómari sáu atvikið og því ekkert dæmt. Á 19.mínútu var hætta á ný við mark Sunderland en Huddlestone gaf þá langa sendingu frá vítateig Tottenham fram á Jenas og skaut hann boltanum framhjá Gordon í markinu. Boltinn stefndi þó rétt framhjá og þrátt fyrir sprett Berbatov til að reyna að stýra boltanum í netið þá tókst það ekki en boltinn sleikti stöngina á leið sinni út af vellinum. Leikmenn Sunderland komust lítt áleiðis og voru ansi uppteknir í varnarleiknum. Lennon átti góða fyrirgjöf fyrir markið á Berbatov sem skaut í þverslánna og 10 mínútum fyrir hálfleik átti Defoe þrumuskot að marki sem Gordon rétt náði að verja með fingurgómunum. Gordon var svo enn á ný í eldlínunni þegar Berbatov skaut hörkuskoti að marki en Gordon varði vel. Sunderland átti þó eitt gott færi undir lok fyrri hálfleiksins en Dawson var vel vakandi og vann boltann af Jones. Staðan í hálfleik var því einungis 1-0 og hefði forskot Tottenham auðveldlega getað verið stærra en uppá vantaði að klára dauðafærin.
Seinni hálfleikur var gjörólíkur þeim fyrri. Leikmenn Sunderland mættu mun ákveðnari til leiks og ætluðu sér að jafna leikinn enda munaði einungis einu marki. Murphy átti hættulegt skot að marki og Jones kom boltanum í markið en var réttilega dæmdur rangstæður og því markið ekki gilt. Sunderland var að taka öll völd á vellinum og Ramos sá þann kost einan að gera skiptingu. O´Hara fór af velli þegar 10 mín voru liðnar á síðari hálfleik og inná í stað hans kom Tainio á miðja miðjuna. Breyttist þá örlítið liðið þar sem Lennon færði sig á vinstri kantinn og Boateng fór á þann hægri. Tottenham átti þó nokkur færi og voru Defoe, Berbatov og Huddlestone ekki langt frá því að auka við forskotið. Á 74.mínútu skipti Ramos á fyrirliðum þegar hann tók Defoe út af og inná kom Keane. En Cerny fékk nóg að gera þegar leið á hálfleikinn og varði mjög vel skallabolta frá Collins. Dawson þurfti einnig að koma hættulegum bolta frá. Og enn hélt Sunderland áfram að pressa og Cerny varði tvo hættulega bolta með stuttu millibili. Chimbonda kom inná fyrir Stalteri þegar líða fór að lokum leiksins og tókst að næla sér í gult spjald á þeim fáum mínútum sem hann spilaði. Þetta þýðir að hann verður í banni gegn Manchester United í FA Cup næstkomandi sunnudag þar sem þetta var hans fimmta gula spjald á leiktíðinni. En í uppbótartíma var svo komið að Robbie Keane en hann fékk mjög góða sendingu og stakk sér inn fyrir vörn Sunderland og kom boltanum undir Gordon og í markið og var þetta hundraðasta mark hans fyrir Tottenham í öllum keppnum og til að fagna þessum áfanga tók Keane sitt fræga fagn en skoðanir manna eru misjafnar á því hversu flott það fagn er. Hins vegar er það glæsilegur árangur að skora 100 mörk fyrir félagið og óskum við Keane til hamingju með það. En það sem mestu skipti við leik dagsins í dag er að liðið tryggði sér öll þrjú stigin og hélt hreinu í þokkabót.
Lið Spurs: Cerny, Stalteri (Chimbonda), Dawson, Huddlestone, Lee, Lennon, Boateng, O´Hara (Tainio), Jenas, Defoe (Keane), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Robinson, Rose.






