Tottenham hefur staðfest kaup á Alan Hutton frá Glasgow Rangers og er hann þriðji leikmaðurinn sem félagið kaupir nú í janúar. Hutton er skoskur landsliðsmaður og spilar stöðu hægri bakvarðar. Hann er 23 ára og spilaði 122 leiki fyrir Rangers og skoraði í þeim 4 mörk. Kaupverð er ekki gefið upp en er talið vera í kringum 9 milljónir punda.
Við bjóðum Hutton velkominn til Tottenham.






