Jafnt á Goodison Park

0
653

Tottenham og Everton skildu jöfn þegar liðin mættust á Goodison Park. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og var ekkert mark skorað í leiknum. Jonathan Woodgate lék sinn fyrsta leik fyrir Tottenham eftir að hafa verið keyptur frá Middlesbrough í vikunni og stóð sig mjög vel og var af mörgum talinn maður leiksins. Gunter spilaði einnig sinn fyrsta leik fyrir liðið í deildinni en hafði áður spilað í FA cup.

Ramos gerði nokkrar breytingar á liðinu frá síðasta leik. Cerny hélt sæti sínu í markinu, Chimbonda, Woodgate, Huddlestone og Gunter skipuðu vörnina en Dawson tók út leikbann í þessum leik eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Man.Utd. Miðjan var skipuð Lennon, Jenas, O´Hara og Malbranque og frammi byrjuðu sem fyrr Keane og Berbatov. Bekkurinn var skipaður þeim Robinson, Rocha, Lee, Boateng og Defoe.

     Leikurinn fór rólega af stað og var alls ekki mikið um góða spilamennsku en hvorugt liðið náði að skapa sér færi sem telja mætti hættulegt. Það var ekki fyrr en á 23.mínútu að Malbranque fékk boltann inn í teig og reyndi að koma boltanum framhjá markverði Everton með hjólhestaspyrnu en það tókst ekki. Stuttu síðar áttu Everton menn færi eftir hornspyrnu frá Valente, Anichebe gaf á Johnson sem var í upplögðu færi en missti boltann frá sér og Cerny lenti ekki í vandræðum þar. Baines og Johnson áttu einnig góð færi en Woodgate og Cerny brugðust vel við. Tíu mínútum fyrir hálfleik vildi Johnson fá dæmda vítaspyrnu á Huddstone en dómarinn var ekki á sama máli og lét leikinn halda áfram. Sjónvarpsupptökur sýndu að dómarinn hafði rétt fyrir sér enda datt Johnson um sjálfan sig og engin snerting var til staðar. Staðan var 0-0 í hálfleik.

     Strax í upphafi síðari hálfleiks átti Arteta frábæra fyrirgjöf en til lukku fyrir Tottenham var enginn Everton maður inni í teig til að pota boltanum inn. Á hinum enda vallarins átti Keane ágætisfæri en skotið var þó beint á Howard í markinu. Berbatov átti einnig möguleika á góðu færi en var að hans mati hrint af Lescott en dómarinn var ekki á sama máli. Cerny sýndi svo góða takta þegar Johnson slapp einn inn fyrir en Cerny varði vel og Woodgate hreinsaði svo frá. Á 62. mínútu gerði Ramos breytingu á liðinu og tók Gunter útaf og setti Boateng inná. O´Hara færði sig þá aftur í stöðu vinstri bakvarðar og Boateng fór inn á miðjuna. Everton sótti aðeins í sig veðrið en kom þó boltanum ekki yfir marklínuna. Undir lokin tóku svo leikmenn Tottenham völdin á vellinum og gerðu tilraun til að taka með sér öll stigin tilbaka til London. Færin voru þó ekki nógu hættuleg, Malbranque vildi fá vítaspyrnu og Berbatov, afmælisbarn dagsins, átti ágætisfæri en inn fór boltinn ekki og liðin deildu með sér stigunum í þessum leik.

 

Lið Spurs: Cerny, Chimbonda, Woodgate, Huddlestone, Gunter (Boateng), Lennon, Jenas, O´Hara, Malbranque, Keane, Berbatov. Ónotaðir varmenn: Robinson, Lee, Rocha, Defoe.