Tottenham tók tilboði Portsmouth í Jermaine Defoe á síðasta degi félagaskiptagluggans og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við það síðarnefnda. Defoe kom til Tottenham í janúar 2004 frá West Ham og lék alls 177 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 64 mörk. Hann hefur átt í harðri baráttu við aðra sóknarmenn liðsins um byrjunarliðssæti og oftar en ekki vermt varamannabekkinn og hefur því ákveðið að söðla um og halda á nýjar slóðir. Kaupverð er ekki gefið upp en talið er að það sé í kringum 9 milljónir punda sem er af mörgum talið í lægri kantinum. Hann átti þó ekki nema 18 mánuði eftir af samningi sínum og félagið sá sig tilneytt til að selja hann nú í stað þess að missa hann frítt eftir 18 mánuði.
Við óskum Defoe alls hins besta í framtíðinni og þökkum honum fyrir framlag hans til liðsins.






