Tottenham deildarbikarmeistari

0
540

Tottenham sigraði Chelsea í úrslitum deildarbikarsins á Wembley, 2-1 eftir framlengdan leik. Leiknum lauk með jafntefli 1-1 eftir venjulegan leiktíma þar sem Drogba kom Chelsea yfir en Berbatov jafnaði úr vítaspyrnu. Woodgate skoraði svo sigurmarkið með skalla í framlengingunni og því voru það leikmenn Spurs sem lyftu bikarnum í leikslok eftir langa bið.

     Vitað mál var að einhverjir yrðu ekki ánægðir eftir að Ramos tók ákvörðunum um liðsuppstillinguna enda vildu allir leikmenn Spurs spila þennan leik. Ramos kaus að byrja með Robinson í marki eftir góða frammistöðu í evrópuleiknum á fimmtudaginn. King náði að jafna sig á meiðslunum og taka þátt í leiknum og skipaði ásamt Hutton, Woodgate og Chimbonda varnarlínu liðsins. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi þeir Berbatov og Keane. Á bekknum voru þeir Cerny, Kaboul, Tainio, Huddlestone og Bent.

     Það var sérstök stund þegar Ledley King leiddi liðið inn á þjóðarleikvang Englendinga, Wembley, eftir langa bið.  Leikmenn Tottenham mættu ákveðnir til leiks og spiluðu mun betur fyrstu mínúturnar. Á upphafsmínútunni átti Keane skot að marki sem fór framhjá eftir að Terry komst í veg fyrir skotið. Úr hornspyrnunni sem liðið fékk í kjölfarið munaði ekki miklu að King næði til boltans eftir skalla frá Berbatov. Chimbonda átti einnig skalla að marki sem small ofan á þverslánna eftir hornspyrnu frá Malbranque og Berbatov skallaði rétt framhjá eftir fyrirgjöf frá Robbie Keane. Eftir mikla yfirburði á fyrstu tíu mínútunum vöknuðu chelsea menn til lífsins og komust æ meira inn í leikinn. Woodgate gerði vel í að koma í veg fyrir að fyrirgjöf Wright-Philips næði að rata fyrir fætur Chelsea manna inni í teig og kom hann svo einnig við sögu á hinum enda vallarins þegar Tottenham fékk aukaspyrnu en skalli hans fór vel yfir rammann. Cech varði svo vel síðar þegar Malbranque átti skot að marki og leikmenn Chelsea svöruðu strax með sókn þar sem Lampard átti skot að marki og var þetta fyrsta almennilega færi þeirra og hálftími liðinn af leiknum. Á stuttum tíma fengu leikmenn Chelsea svo 3 aukaspyrnur í röð fyrir utan teiginn og var það Drogba sem vann þær allar en sumir töldu hann falla heldur auðveldlega við minnstu snertingu. Fyrstu tvær aukaspyrnurnar reyndur ekki mikið á Robinson en sú þriðja var allt annað mál. Zokora felldi Drogba rétt utan við vítateiginn og Drogba tók spyrnuna sjálfur og skaut framhjá varnarveggnum sem og Robinson í markinu og staðan því orðin 1-0 fyrir Chelsea þegar 38 mínútur voru liðnar af leiknum. Rétt fyrir leikhlé átti Berbatov svo besta færið til að jafna leikinn eftir sendingu frá Robbie Keane en rann til í teignum og náði því ekki almennilegu skoti að markinu. Staðan í hálfleik var því 1-0 Chelsea mönnum í vil.

     Seinni hálfleikur hófst á annan hátt heldur en sá fyrri. Bæði lið voru nokkuð jöfn og hraðinn ekki eins mikill. Lítið markvert gerðist fyrsta korterið og leikmenn Tottenham virtust ekki ætla að jafna leikinn. Ramos kaus þá að gera breytingu á liðinu til að auka pressuna á Chelsea og kom Huddlestone inná í stað Chimbonda. Chelsea hélt þó áfram að eiga hættuleg skot og var King algjör bjargvættur þegar hann komst í veg fyrir skot Anelka að markinu. Á 68.mínútu dró þó til tíðinda. Huddlestone átti í baráttu við Bridge í vítateig Chelsea manna þar sem Huddlestone reyndi að koma sér í skotstöðu með boltann. Boltinn fór þá tvisvar í hönd Bridge og aðstoðardómarinn var ekki í vafa og dæmdi að vítaspyrna skyldi vera tekin. Berbatov steig á punktinn og átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Cech í markinu. Þegar korter var til leiksloka gerði Ramos aðra skiptingu og tók Malbranque af velli og í hans stað kom Tainio. 10 mínútum fyrir leikslok fékk Zokora svo upplagt færi til að koma Tottenham yfir í leiknum þegar hann var kominn einn innfyrir en Cech náði að verja skot hans þegar boltinn fór beint í hausinn á honum en Zokora náði þá boltanum aftur og skaut þá rétt yfir markið. Leiknum lauk svo með jafntefli 1-1 og því þurfti að framlengja leikinn.

     Það tók Tottenham einungis fjórar mínútur að komast yfir í framlengingunni. Jenas tók aukaspyrnu nokkrum metrum fyrir utan vítateiginn og gaf boltann inn í teiginn. Woodgate hoppaði upp í boltann en Cech varði með því að kýla í boltann. Boltinn barst þó ekki lengra en í hausinn á Woodgate og inn í autt markið. Stuðningsmenn kættust og leikmenn glöddust einnig en nóg var þó eftir af framlengingunni. Ramos kaus svo að gera síðustu skiptingu sína undir lok fyrri hluta framlengingunnar og tók þá Robbie Keane af velli og inná í hans stað kom Kaboul og með því gat Ramos þétt vörnina enda við því að búast að Chelsea myndi efla til stórsóknar í síðari hlutanum. Síðari hluti framlengingarinnar leið þó án þess að nokkurt mark kæmi en Tottenham liðið varðist vel og Robinson átti nokkrar góðar markvörslur. Dómarinn flautaði svo leikinn af og út breiddust mögnuð fagnaðarlæti, bæði hjá leikmönnum, starfsfólki Tottenham sem og þeim þúsundum áhorfenda sem á leiknum voru. Ledley King lyfti svo bikarnum ásamt Robbie Keane og er fyrsti titill liðsins í höfn eftir níu ára bið en þetta telst mjög gott afrek hjá liðinu undir stjórn Ramos og félaga en þeir hafa einungis stjórnað liðinu í 4 mánuði. Með sigrinum tryggði liðið sér svo þátttöku í UEFA keppninni á næsta ári. Þetta var gleðistund og óskum við öllum spursurum til hamingju með sigurinn….

Lið Spurs: Robinson, Hutton, Woodgate, King, Chimbonda (Huddlestone), Lennon, Jenas, Zokora, Malbranque ( Tainio), Keane (Kaboul), Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Bent.