Aðalfundur – fundargerð

0
624

Aðalfundur Tottenham klúbbsins var haldinn 18.júlí sl. á Ölveri í Reykjavík. Ýmis málefni voru rædd á fundinum og eru þau í helstu dráttum þessi:

Farið var yfir skýrslu stjórnar frá liðnum vetri sem og ársreikninga síðasta veturs og voru þeir samþykktir. Sama stjórn var endurkosin og er Sigurþór Hafsteinsson því formaður sem fyrr, Guðmundur Pétursson gjaldkeri, Sigrún Júlíusdóttir ritari, Birgir Ólafsson sér um miðamál og Jónas Hjartarson meðstjórnandi. Ásgeir Jónsson og Hörður Ágústsson skipa varastjórn.

Ein lagabreyting var gerð sökum breytinga hjá klúbbnum úti og er það breyting á 4gr. laganna. Þar stóð áður að árlegan aðalfund skyldi halda í júní eða júlí. Tillagan var sú að þessu yrði breytt í að árlegan aðalfund skal halda í síðasta lagi 31.maí og var sú tillaga samþykkt.
Einnig var lögð fram tillaga að hækka árgjaldið í klúbbinn í 2300 kr og var það samþykkt.

Klúbburinn hefur hingað til útvegað félagsmönnum miða á leiki yfir veturinn en sökum breytinga hjá félaginu úti er ekki komið á hreint með hvaða hætti miðamálum verður háttað í vetur. Þeir sem hafa hug á að fara á leiki næsta vetur er bent á að hafa samband við klúbbinn í tölvupósti á midar@spurs.is.

Starf klúbbsins nk. vetur verður með svipuðum hætti og fyrri ár. Heimasíðan verður áfram starfrækt og stendur til að gera enn betur nú í ár og verða líklega einhverjar breytingar á henni á næstu mánuðum. Spjallborðið er ávallt vinsælt og verður tippleikur þar í gangi yfir veturinn eins og fyrri ár. Einnig verður gefið út blað á tímabilinu líkt og verið hefur sl. ár.

Ef einhverjar spurningar vakna þá vil ég benda fólki að hafa samband við stjórnina á spurs@spurs.is eða midar@spurs.is

Sigrún Ásta, fundaritari.