Tottenham tilkynnti í dag að félagið hefur komist að samkomulagi við Sunderland um sölu á Pascal Chimbonda. Chimbonda gekk til liðs við Tottenham í ágúst árið 2006 frá Wigan og spilaði alls 98 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 4 mörk. Chimbonda verður annar leikmaðurinn frá Spurs sem Sunderland kaupir þetta sumarið en fyrr í vikunni keyptu þeir Teemu Tainio.
Við óskum Chimbonda góðs gengis hjá nýju félagi og þökkum honum fyrir framlag hans til liðsins á þeim tíma sem hann var hjá félaginu.






