Tottenham vann stórsigur á liði Norwich í æfingaleik á Carrow Road í gærkveldi. Leiknum lauk með 5-1 sigri Tottenham og var Darren Bent heldur betur á skotskónum en hann skoraði fjögur marka Tottenham en það fimmta var sjálfsmark.
Það var margt jákvætt við þennan leik. Modric spilaði 45 mínútur, King og Bale spiluðu í sínum fyrsta leik á undirbúningstímabilinu, dos Santos átti mjög góðan leik og Bent lék á alls oddi og raðaði inn mörkunum. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn þrátt fyrir að Tottenham væri örlítið betra og staðan í hálfleik var 2-1 fyrir gestina. En seinni hálfleikur var algjör einstefna og Norwich menn sáu aldrei til sólarinnar. Liðið lék góðan bolta, hélt boltanum vel, skapaði sér góð færi og skoraði nokkur mörk.
Poyet var mjög ánægður í leikslok og sagði menn stanslaust vera að bæta sig.
Lið kvöldsins: Gomes, Gunter, Gilberto (Bale, 60), King (Assou-Ekotto, 46), Dawson (Huddlestone, 27), O’Hara, Jenas, Zokora, dos Santos (Taarabt, 81), Modric (Lennon, 46), Bent. Ónotaðir varamenn: Jansson, Berbatov.






