Ekki var byrjunin á tímabilinu hjá Tottenham eins og best var á kosið því liðið tapaði fyrsta leiknum gegn
Liðið sem Ramos stillti upp var kannski ekki það sterkasta sem hann hafði úr að velja en engu að síður kaus hann að veðja á þetta byrjunarlið. Á milli stanganna stóð Gomes og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Zokora,
Leikmenn Tottenham hófu leikinn betur og spiluðu mun betur fyrstu 10 mínúturnar af leiknum og átti Giovani tvær ágætis sendingar á Bentley en ekki tókst honum að skora. En Boro menn fóru svo að komast meira inn í leikinn og þegar tæpar 20 mínútur voru liðnar af leiknum fengu þeir sannkallað dauðafæri. Tuncay og Alves voru mættir fyrir framan markið þar sem eingöngu Ekotto var til að verjast auk Gomes. Tuncay kom boltanum framhjá Ekotto og brunaði í átt að markinu með Ekotto á eftir sér. Hann gaf síðan boltann á Alves sem var einn og óvaldaður fyrir framan markið. Hann hikaði aðeins áður en hann skaut og það var nóg til að Ekotto náði að komast fyrir skotið og úr varð einungis hornspyrna. Þegar rétt rúmlega hálftími var liðinn af leiknum skoraðu Boro menn svo fyrsta mark leiksins en það var að því er virðist ranglega dæmt af. Downing tók hornspyrnu og Wheater skallaði boltann í netið en dómarinn dæmdi markið af en ekki er skýrt af hverju.
Engar skiptingar voru gerðar í hálfleik en leikmenn Tottenham virtust aðeins líflegri á fyrstu mínútum seinni hálfleiks heldur en í fyrri hálfleik. Bentley átti gott skot að marki en Jones varði skotið. Lennon og Giovani reyndu hvað þeir gátu að berjast í gegnum vörn Boro manna en án árangurs. Boro menn nýttu sér hraðaupphlaup og komst Alves í ágætt færi en Ekotto náði að koma í veg fyrir skotið. Þegar um klukkustund var liðin af leiknum átti Tuncay gott skot að markinu en Woodgate kastaði sér fyrir skotið og boltinn fór því ekki inn. Stuttu síðar gerði Ramos loks breytingu á liðinu enda lítið sem benti til þess að Tottenham gerði sig líklegt til að skora. Giovani og Lennon fóru af leikvelli og í stað þeirra komu þeir Bale og Berbatov inná. Berbatov tók strax til sinna ráða og sendi boltann glæsilega á Jenas inn fyrir vörnina en honum tókst ekki að koma boltanum framhjá Jones í markinu. Leikmönnum Tottenham gekk illa að brjótast í gegnum sterka vörn Boro manna og voru það svo heimamenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins á 70.mínútu. Downing gaf á Alves sem skaut að markinu en Gomes náði að verja boltann í þverslánna en þaðan barst boltinn út í teiginn þar sem Wheater nýtti sér færið og skoraði. Staðan orðin 1-0 fyrir Boro. Bent átti skot að marki sem fór rétt framhjá og svo var komið að þriðju og síðustu skiptingu leiksins en þá kom O´Hara inná í stað Ekotto. Þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum innsigluðu Boro menn svo sigurinn þegar Mido náði að pota boltanum inn eftir misheppnaða skottilraun Digard og staðan því orðin 2-0 fyrir heimamenn. Leikmenn Spurs fengu svo smá sárabót þegar Huth varð fyrir því óláni að koma boltanum í sitt eigið net eftir aukaspyrnu frá Bentley í uppbótartíma. Þetta mark kom þó of seint og lokatölur voru því 2-1 fyrir
Lið Spurs: Gomes, Zokora, Dawson, Woodgate, Ekotto (O´Hara), Lennon (Bale), Jenas, Modric, Bentley, Giovani (Berbatov), Bent. Ónotaðir varamenn: King, Huddlestone, Gunter og Sachez.






