Afmælisferð í haust

0
687

Stjórnin hefur hafið skipulagningu á ferð á leik Tottenham og Everton þann 15. október nk. Verið er að ganga frá lausum endum þessa dagana en tilhögunin er sú að við förum út fimmtudaginn 13. okrtóber og kæmum heim aftur sunnudaginn 16. október.

Leikurinn sjálfur er á laugardeginum 15. okt. Ætlunin er að hafa uppákomu í ferðinni en ekki er búið að ganga frá öllum endum þar. Verðið er ekki komið á hreint en verður varla yfir 60.000 á mann í tvíbýli (gæti orðið lægra) og þá nokkru meira í einbýli. Ætlunin er að bjóða 40 sæti og vonandi náum við þeim fjölda enda um 10. ára afmæli klúbbsins að ræða. Nú er bara að taka frá þessa daga og safna fyrir ferðinni. Við munum tilkynna endanlegt fyrirkomulag á ferðinni og verð inna skamms. HJ