Fyrsta stig tímabilsins í hús

0
591

Tottenham vann sér inn sitt fyrsta stig á tímabilinu þegar liðið heimsótti Chelsea á Stamford Bridge. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og má með sanni segja að mörkin hafi ekki verið þau glæsilegustu en þau töldu þó. Belletti kom Chelsea yfir í leiknum en Bent jafnaði leikinn fyrir Tottenham.

Ramos gerði breytingu á liðinu frá síðasta leik og lagði upp með það að halda Chelsea í skefjum með vel skipulagðri vörn. Gomes stóð sem fyrr á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Gunter, Woodgate, King og Bale. Fyrir framan vörnina í hlutverki varnartengiliðs var Zokora og miðjan var svo skipuð þeim Bentley, Jenas, Modric og Giovani. Frammi lék Bent einn sem fyrr. Á bekknum sátu þeir Sanchez, Gilberto, Ekotto, O´Hara, Huddlestone, Dawson og Lennon.

     Leikurinn var fjörugur strax frá fyrstu mínútu og eftir aðeins 5 mínútna leik sýndi Gomes glæsileg tilþrif í markinu. Lampard reyndi að vippa boltanum yfir Gomes sem var kominn örlítið út í markteiginn en Gomes var vel vakandi og náði að verja boltann yfir þverslánna með fingurgómunum. Giovani átti sendingu á Bent á hinum enda vallarins en boltinn fór í leikmann chelsea og framhjá markinu. Leikmenn Tottenham voru mun meira með boltann fyrstu 20 mínúturnar en náðu þó ekki að skapa sér hættuleg færi að ráði. Og það var svo Chelsea sem skoraði fyrsta mark leiksins. Essien skaut þrumuskoti að marki vel utan af velli sem small í þverslánni og Woodgate bjargaði svo boltanum í hornspyrnu. Deco gaf boltann inn í teiginn en þar hitti Bent ekki boltann þegar hann reyndi að hreinsa frá og boltinn fór beint í fótinn á Belletti og inn í markið. Mjög svo klaufalegt mark og staðan því orðin 1-0 fyrir heimamenn. Eftir markið komust leikmenn Chelsea aðeins meira inn í leikinn og sóttu að marki en hvorugu liðinu tókst að skapa sér dauðafæri. Það var hins vegar rétt fyrir lok fyrri hálfleiks að Lampard gerði mistök þegar hann reyndi að hreinsa úr vítateignum og boltinn barst til Bent sem skaut boltanum beint í gegnum klofið á Cech í markinu. Staðan orðin jöfn 1-1 og var þetta fyrsta mark Bent í deildinni eftir gott undirbúningstímabil. Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik.

     Leikmenn Chelsea voru greinilega staðráðnir í að reyna að ná aftur forystunni í síðari hálfleik  Lampard og Cole áttu ágætis tækifæri en Gomes var eins og klettur í markinu með sterka vörn fyrir framan sig. Þegar klukkustund var liðin af leiknum gerði Ramos tvær breytingar á liðinu. Lennon kom inná í staðinn fyrir Giovani og Huddlestone kom sömuleiðis inná í stað Gunter. Jenas fór þá í hægri bakvörðinn, Lennon á hægri kantinn, Huddlestone á miðjuna og Bentley á vinstri kantinn. Leikmenn Tottenham sóttu í sig veðrið og áttu ágætar tilraunir á mark Chelsea manna. Huddlestone átti gott skot að marki en varnarmenn chelsea komust í veg fyrir skotið og boltinn fór framhjá. Ramos nýtti svo síðustu skiptinguna og fór Bentley af velli og inná í hans stað kom O´Hara. Bæði lið gerðu tilraun til að hirða öll stigin en hvorugu liðinu tókst að skora og leiknum lauk því með 1-1  jafntefli og fyrsta stig Tottenham manna komið í hús.

Lið Spurs: Gomes, Gunter (Huddlestone), Woodgate, King, Bale, Bentley (O´Hara), Jenas, Zokora, Modric, Giovani (Lennon), Bent. Ónotaðir varamenn: Sanchez, Dawson, Gilberto, Ekotto.