Corluka til Spurs

0
716

Tottenham tilkynnti núna í morgunsárið á síðasta degi félagsskiptagluggans að félagið hafi komist að samkomulagi við Manchester City um kaup á Vedran Corluka. Corluka er 22 ára króatískur landsliðsmaður og er mjög fjölhæfur. Hann getur spilað sem hægri bakvörður og sem miðvörður en einnig hefur hann af og til spilað stöðu varnartengiliðs með miklum sómar. Hann hóf feril sinn hjá Dinamo Zagreb og gekk svo til liðs við City fyrir ári síðan og spilaði 41 leik fyrir þá. Hann er eins og áður sagði fastamaður í króatíska landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur og hefur spilað alls 24 leiki fyrir landsliðið. Corluka var mjög ánægður með að vera komin til Tottenham, bæði vegna liðsins sem og að hann besti vinur, Modric, er einnig hjá félaginu.

Við bjóðum Corluka velkominn til Spurs.