Enn eitt tapið

0
680

Tottenham tapaði fyrir Aston Villa á White Hart Lane á mánudagskvöldið og var þetta þriðji tapleikurinn af fjórum leikjum sem leiknir hafa verið á tímabilinu. Liðið situr því sem stendur í botnsæti deildarinnar með einungis 1 stig. Leiknum lauk með 2-1 sigri Aston Villa þar sem Villa komst í 2-0 með mörkum frá Reo-Coker og Young en Bent skoraði eina mark Tottenham.

 

Ramos gerði talsverðar breytingar á liðinu frá jafnteflis leiknum gegn Chelsea og má telja að hann hafi haft evrópuleikinn næstkomandi fimmtudag í huga við val á liðinu. Gomes var þó í marki sem fyrr en vörnin var skipuð þeim Corluka, Dawson, Woodgate og Bale. Corluka var þar með að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið eftir félagaskipti sín frá Manchester City. Á miðjunni léku þeir Huddlestone, Zokora og Modric og frammi þeir Lennon, Bent og Pavlyuchenko en sá síðastnefndi var einnig að spila sinn fyrsta leik í hvítu treyjunni. Á bekknum sátu þeir Sanchez, Gilberto, O´Hara, Jenas, Bentley, Giovani og Campbell.

Leikmenn Villa virtust koma mun ákveðnari til leiks og það leið ekki á löngu þar til þeir höfðu komið boltanum í netið. Young gaf sendingu á Agbonlahor frá vinstri kantinum en boltinn fór framhjá honum og nokkrum leikmönnum spurs og beint fyrir framan markið þar sem Reo-Coker var vel staðsettur og potaði boltanum í markið. Staðan því orðinn 1-0 fyrir gestina. Svo má segja að leikmenn Tottenham megi þakka Gomes fyrir að vera einungis marki undir í hálfleik. Á 22.mínútu sendi Reo-Coker boltann fyrir markið á fjarstöngina þar sem Barry skaut að marki en Gomes náði að verja boltann með því að kasta sér frábærlega í átt að stönginni. Stuttu síðar sýndi hann svo enn aftur klassa markvörslu þegar hann varði skalla frá Agbonlahor. Þegar hálftími var liðinn af leiknum þurfti Modric að fara af velli sökum hnémeiðsla og inná í hans stað kom Jermaine Jenas. Stuttu síðar kom svo fyrsta færi Tottenham í leiknum en það var langskot frá Huddlestone. Lítið annað markvert gerðist í fyrri hálfleik og voru því gestirnir yfir með marki gegn engu í hálfleik.

 

Ein skipting var gerð strax í hálfleik en þá fór Zokora af velli og inná kom Bentley. Seinni hálfleikur hófst á björtum nótum og eftir um fjögurra mínútna leik átti Lennon dauðafæri sem Friedel varði vel. Það var því töluvert áfall fyrir leikmenn Spurs þegar Villa náði að auka forskot sitt með marki fjórum mínútum síðar. Young tók á langan sprett og náði að hlaupa Dawson frá sér og skjóta að marki frá löngu færi. Litlu munaði að Gomes næði að grípa boltann en boltinn rann undir hann og í markið. Eftir um klukkustundar leik gerði Ramos síðustu skiptingu sína þegar hann tók Dawson af velli og inná kom Giovani. Þessi skipting virtist kveikja smá líf í leikmönnum Spurs og áttu þeir Bentley, Giovani, Lennon og Bent allir færi til að skora mark. Það var svo Bent sem tókst að koma boltanum í netið þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum en það mun seint teljast hans fallegasta mark. Í raun var það Jenas sem var smiðurinn að markinu því skot hans fór beint í Bent og þaðan inn í markið. Þetta var þó aðeins of seint því að ekki tókst Tottenham að jafna leikinn. Í raun geta leikmenn Spurs þakkað Jenas það að Villa tókst ekki að skora undir lok leiksins en þá stóð Harewood frammi fyrir auðu marki og skaut að markinu en Jenas kastaði sér fyrir skotið og boltinn fór í hann og framhjá. Leiknum lauk því 2-1 og er þetta versta byrjun Tottenham í 34 ár og liðið hefur einnig ekki tapað jafnmörgum heimaleikjum í röð í 12 ár en leikirnir eru nú orðnir 6 talsins. Næsti leikur liðsins er á fimmtudaginn í evrópukeppninni gegn Wisla Krakow á White Hart Lane.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson (Giovani), Woodgate, Bale, Lennon, Zokora (Bentley), Huddlestone, Modric (Jenas), Pavlyuchenko, Bent.   Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, O’Hara, Campbell