Markalaust á White Hart Lane

0
577

Tottenham gerði markalaust jafntefli við Wigan á White Hart Lane í fimmta deildarleiknum á tímabilinu og þurfa því leikmenn jafnt sem stuðningsmenn að bíða aðeins lengur eftir fyrsta sigri liðsins á tímabilinu. Liðið situr því enn á botninum með 2 stig eftir fimm umferðir og er þetta versta byrjun liðsins í 34 ár.

     Ramos gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn. Gomes stóð þó sem fyrr á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Zokora, Corluka, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, O´Hara, Jenas og Bale og frammi voru þeir Bent og Pavlyuchenko. Á bekknum sátu Sanchez, Gilberto, Gunter, Giovani, Lennon, Campbell og Huddlestone.

     Fyrri hálfleikur var mjög daufur og lítið um hættuleg marktækifæri. Wigan áttu þó aðeins fleiri færi en Tottenham og þurfti Gomes einu sinni að taka á honum stóra sínum og varði stórkostlega rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Eina hættulega færi Tottenham kom á 18.mínútu fyrri hálfleiksins þegar Bent átti langskot að marki en Kirkland varði vel. Staðan í hálfleik var því 0-0 og liðin ekki að skapa sér mörg tækifæri. Það var því alveg ljóst að eitthvað þurfti að breytast í hálfleik.

     Ramos tók þá ákvörðun að setja Campbell inná í upphafi síðari hálfleiks og af velli í hans stað fór Pavlyuchenko. Ekki breyttist leikur liðsins mikið við inná komu hans ólíkt því sem gerðist í leiknum gegn Wisla Krakow. Ramos gerði því aðra breytingu á 64 mínútu þegar Bentley, sem átt hafði afar slakan leik, fór af velli og inná kom Lennon. Þessi skipting kveikti örlítið líf í leikmönnum Tottenham og átti Lennon hættulega fyrirgjöf fyrir markið stuttu eftir að hann kom inná, eftir hraðan sprett upp hægri kantinn en enginn var þar til að pota honum inn í markið. Stuttu síðar var brotið á Lennon inni í vítateig Wigan manna en Tanner, dómari leiksins, lét leikinn halda áfram þrátt fyrir að ekki væru allir á eitt sáttir með dómgæslu hans. Lennon komst svo einna næst því að skora fyrir Tottenham þegar hann skaut vinstri fótar skoti að markinu en boltinn fór rétt framhjá stönginni. Campbell átti svo góðan möguleika til að skora eftir sendingu frá Bale en hann var einungis nokkrum sentimetrum frá því að ná í boltann. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka gerði Ramos þriðju og síðustu skiptingu sína og fór þá Bale af velli og inná kom Huddlestone. Bent, O´Hara og Huddlestone komust allir í hálffæri en það var ekki nóg til að koma boltanum í net Wigan manna. Á lokamínútum leiksins fékk Gomes svo nóg að gera, fyrst munaði litlu að Kapo næði að skora en skalli hans fór yfir markið og stuttu síðar varði hann vel og kom í veg fyrir að Wigan stæli sigrinum. Engin mörk voru skoruð í þessum tíðindalitla leik og skiptu því liðin með sér stigunum.

Lið Spurs: Gomes,  Zokora, Corluka, Woodgate, Assou-Ekotto, Bentley (Lennon), Jenas, O’Hara, Bale (Huddlestone), Pavlyuchenko (Campbell), Bent . Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, Gunter, Giovani

DEILA
Fyrri fréttHópferð
Næsta fréttTitilvörnin hafin