Tottenham heimsótti Newcastle á St.James´ Park í fyrsta leik sínum í Carling Cup á þessari leiktíð og hóf þar með titilvörn sína. Tottenham hafði ekki tölfræðina með sér fyrir leikinn þar sem liðið hafði aldrei unnið Newcastle á St.James´ Park í bikarleik í sögu félagsins. En nú varð breyting á þar sem Tottenham vann leikinn 2-1 með mörkum frá Pavlyuchenko og O´Hara en þetta var fyrsta mark Pavlyuchenko fyrir félagið. Mark Newcastle skoraði Owen.
Enn einu sinni gerði Ramos breytingu á liðinu frá síðasta leik. Gomes stóð þó sem fyrr á milli stanganna í markinu en vörnin var skipuð þeim Corluka, Woody, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Zokora, O´Hara og Bale og einn frammi spilaði Pavlyuchenko. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gilberto, Modric, Bentley, Bent, Campbell og Giovani.
Fyrri hálfleikur var afar tíðindalítill. Snemma leiks fengu bæði Pavlyuchenko og Gomes að finna fyrir leikmönnum Newcastle þegar brotið var á þeim en þrátt fyrir smá hnjask héldu þeir áfram leiknum eftir smá aðhlynningu frá læknateymi Tottenham. Eftir tæpar 20 mínútur kom fyrsta færi gestanna þegar Bale tók aukaspyrnu og gaf fyrir markið á Woody en skalli hans fór framhjá markinu. Síðar í hálfleiknum áttu Pavlyuchenko og Woodgate báðir skalla að marki eftir föst leikatriði en ekki vildi boltinn inn. Lennon átti gott skot að marki sem fór rétt framhjá. Hættulegasta færi heimamanna kom á lokamínútum fyrri hálfleiks þegar Geremi skaut að marki úr aukaspyrnu og Cacapa náði að skalla boltan að marki en boltinn fór rétt framhjá stönginni. Mjög dapur fyrri hálfleikur og engin mörk skoruð.
Seinni hálfleikur var þó öllu fjörugri en sá fyrri. Strax á upphafsmínútunum komst Duff nálægt þvi að skora fyrir heimamenn þegar hann kom boltanum framhjá Gomes en Woodgate bjargaði nánast á marklínu. Á 52. mínútu gerði Ramos sína fyrstu skiptingu þegar Bale fór af velli og inná í hans stað kom Giovani. Lennon fór þá á vinstri kantinn og Giovani á þann hægri. Þessi skipting virtist lífga aðeins upp á lið Tottenham og stuttu síðar átti Ekotto þrumuskot vel fyrir utan vítateiginn en Given náði naumlega til boltans. Owen átti færi á hinum enda vallarins en Gomes var vel vakandi í markinu. En eftir 61 mínútu leik kom loksins fyrsta markið. Lennon tók á sprett upp vinstri kantinn, gaf boltann fyrir markið og þar var Pavlyuchenko vel staðsettur og skallaði boltann í netið framhjá Given og var þetta fyrsta mark hans fyrir félagið. Einungis fimm mínútum síðar var forystan aukin þegar O´Hara bætti marki við eftir mistök Newcastle manna. O´Hara hljóp í átt til Taylor, vann af honum boltann og sendi boltann í netið framhjá Given. Á milli markanna gerði Ramos skiptingu þegar Lennon fór af velli og Campbell kom inná í hans stað. Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka kom svo lokaskiptingin en þá fór markaskorarinn, Pavlyuchenko af leikvelli og inná kom Modric en hann var að koma til baka úr meiðslum á hné. Martins átti svo gott skot að marki sem Gomes varði en Gomes gat lítið gert á lokamínútunum þegar Owen kom boltanum í netið. Leiknum lauk því með 2-1 sigri Tottenham og er liðið því kominn í pottinn fyrir dráttinn í næstu umferð í Carling Cup, en dregið verður í hádeginu á laugardaginn.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon (Campbell), Jenas, Zokora, O´Hara, Bale (Giovani), Pavlyuchenko (Modric). Ónotaðir varamenn: Cesar, Gilberto, Bent og Bentley.






