Harry Redknapp hefur lokið við að setja saman teymi af góðum þjálfurum sér til aðstoðar. Kevin Bond kom fljótlega eftir ráðning Harry og nú hefur Joe Jordan, sem vann með honum hjá Portsmouth, gengið til liðs við þjálfarateymið. Clive Allen sem hefur séð um varaliðið mun einnig taka þátt í þjálfun aðalliðsins. Þar að auki koma fyrrum Spursararnir Tim Sherwood og Les Ferdinand að þjálfun liðsins að einhverju leyti þar sem þeir munu miðla reynslu sinni og kunnáttu. Við bjóðum þá alla velkomna til liðsins og vonandi verður framtíðin björt undir þeirra stjórn.






