Tottenham gaf út yfirlýsingu þess efnis að félagið hefði komist að samkomulagi við Paul Stalteri að rifta samningnum hans. Var það gert að vilja beggja aðila og er honum því frjálst að semja við nýtt félag. Samningur hans var í gildi út þetta tímabil en ekki stóð til að endurnýja hann og komust báðir aðilar því að fyrrgreindri niðurstöðu.
Stalteri var keyptur til félagsins sumarið 2005 og lék hann alls 56 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 3 mörk, en það eftirminnilegasta af þeim hlýtur að teljast sigurmarkið í leik gegn West Ham vorið 2007.
Um leið og við þökkum Stalteri fyrir hans framlag til liðsins á sl. þremur árum þá óskum við honum góðs gengis í framtíðinni, en hann hefur samið við þýska liðið Borussia Munhcengladbach.






