Markalaust jafntefli

0
616

Tottenham og Fulham gerðu markalaust jafntefli þegar síðarnefnda liðið mætti í heimsókn á White Hart Lane á öðrum degi jóla. Tottenham hafði nokkra yfirhönd í leiknum en kom boltanum ekki framhjá sterkri vörn Fulham manna og því deildu liðin með sér stigunum.

Harry gerði aðeins eina breytingu á liðinu frá tapleiknum gegn Newcastle, Bent kom inn í stað Pavlyuchenko. Liðið var því skipað þeim Gomes í markinu og í vörninni léku þeir Corluka, Dawson, King og Ekotto. Á miðjunni spiluðu þeir Lennon, Zokora, Huddlestone, Bentley og Modric og var því Bent einn frammi. Á bekknum sátu þeir Cesar, Bale, O´Hara, Woodgate, Jenas, Campbell og Pavlyuchenko.

 

Leikmenn Tottenham mættu mun ákveðnari til leiks og fyrsta almennilega færi leiksins kom á 14. mínútu þegar Bentley skaut löngu skoti að marki en Schwarzer varði vel. Modric átti einnig skot af löngu færi en boltinn fór rétt framhjá stönginni. Þegar 20 mínútur voru liðnar af leiknum varð Tottenham fyrir áfalli þegar Huddlestone varð fyrir meiðslum og haltraði af velli. Inná í hans stað kom Jermaine Jenas. Eftir um hálftíma leik tók Ekotto á sprett upp vinstri kantinn og gaf fyrir á Lennon sem skaut að marki. Schwarzer varði þó skotið aftur fyrir endamörk og því fékk Tottenham hornspyrnu. Bentley tók spyrnuna og boltinn barst til Corluka sem gaf fyrir á markið þar sem King var mættur og skallaði að marki en boltinn fór rétt yfir markið. Fyrsta hættulega færi Fulham manna kom á 36. mínútu þegar Zamora gaf fyrir markið á Dempsey sem skaut að marki en Gomes varði vel. Stuttu síðar fengu þeir annað færi þegar fyrrum spursararnir, þeir Davies og Zamora, áttu gott samspil. Davies gaf fyrir markið á Zamora en hann náði ekki að koma boltanum í netið á fjærstönginni. Staðan í hálfleik var jöfn 0-0.

 

Síðari hálfleikur var svipaður þeim fyrri, leikmenn Tottenham voru meira með boltann en náðu ekki að brjóta niður sterka vörn Fulham manna og skapa sér hættuleg færi. Harry kaus að gera breytingu á liðinu eftir klukkustundar leik og tók Bentley útaf og setti Campbell inná í staðinn og breytti því um leikkerfi yfir í 4-4-2. Á 65. mínútu skaut Modric að marki eftir fyrirgjöf frá Ekotto en skot hans fór framhjá markinu. Harry gerði sína síðustu skiptingu á 72. mínútu þegar Pavlyuchenko kom inná í stað Bent. Stuttu síðar átti hann skot að marki en boltinn fór rétt framhjá stönginni. Gomes sá svo til þess á lokamínútunum að við fengjum amk stig út úr leiknum með glæsilegri markvörslu. Johnson komst einn í gegn, en þó með King á hælunum. Gomes hljóp þá út í boltann og náði til boltans áður en að Johnson næði að skjóta að markinu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma boltanum framhjá Schwarzer í markinu tókst það ekki og liðin deildu því stigunum í leiknum.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, King, Ekotto, Lennon, Zokora, Huddlestone(Jenas), Bentley(Campbell), Modric, Bent(Pavlyuchenko). Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, O´Hara, Woodgate.