Tap í síðasta leik ársins

0
535

Tottenham tapaði síðasta leik ársins gegn botnliði West Bromwich Albion á Howthorns vellinum. Leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna í leik þar sem Ekotto fékk að líta rauða spjaldið. Mörk WBA skoruðu þeir Bednar og Beattie.

Harry neyddist til að gera breytingar á liðinu frá síðasta leik sökum meiðsla. Gomes stóð þó milli stanganna sem fyrr en vörnin var skipuð þeim Corluka, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Zokora, Bentley og Modric og Bent var því einn í framlínunni. Á bekknum sátu þeir Cesar, Gunter, Bale, O´Hara, Taarabt, Campbell og Obika.

 

Leikurinn var harður strax frá fyrstu mínútu og mikil barátta í mönnum og fengu Modric og Bent báðir að finna fyrir leikmönnum WBA á fyrstu mínútum leiksins. Fyrsta færi leiksins fékk Morrison fyrir WBA þegar hann skaut að markinu en skot hans fór þó framhjá. Á hinum enda vallarins náði Bent ekki að koma sendingu á samherja til að valda varnarlínu WBA usla. Leikmenn WBA fengu svo aukaspyrnu á hættulegum stað fyrir utan teig eftir að Corluka hafði brotið á Bednar. Gomes stóð þó fyrir sínu og varði vel. Sama gerði Carson í marki andstæðinganna á 22. mínútu eftir að Bent skaut að marki. Á 35. mínútu gerðist umdeilt atvik en Ekotto og Zuiverloon áttust við og fékk Ekotto að líta rauða spjaldið. Ekki voru allir sammála um ákvörðun dómarans en hann ræður þó ríkjum og Tottenham því með 10 leikmenn það sem eftir lifði leiks. Zokora bakkaði í vinstri bakvörðinn og Modric bakkaði sömuleiðis aftar á miðjuna. Síðasta almennilega færi hálfleiksins fékk Bentley eftir sendingu frá Lennon en skot hans fór vel yfir markið.

 

Í upphafi seinni hálfleiks fengu leikmenn WBA aukaspyrnu á hættulegum stað en Gomes varði meistaralega. Dawson kom svo til bjargar nokkru seinna þegar Zuiverloon gaf góða sendingu inn í teiginn en Dawson skallaði frá áður en nokkur WBA leikmaður komst í boltann. Heimamenn voru með nokkra yfirhönd í leiknum og þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka gerði Harry breytingu á liðinu. O´Hara kom inná í stað Bentley og sjö mínútum síðar kom Bale inná fyrir Modric. O´Hara fór þá á miðjuna og Bale á vinstri kantinn. Á 83. mínútu tókst þó heimamönnum að komast yfir í leiknum með marki frá Bednar. Cech gaf fyrir markið og Bednar skallaði boltann framhjá Gomes í markinu en í endursýningu má augljóslega sjá hvar Bednar hrindir Dawson með því að ýta á bakið á honum og því spurning hvort markið væri löglegt. En dómarinn sá ekkert athugavert við markið og því staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil. Harry gerði þá síðustu skiptingu sína, Zokora fór af velli og Campbell kom inná í hans stað. Bednar átti þó næsta færi leiksins en Gomes sá við honum í þetta skiptið. En þrátt fyrir að leikmenn Tottenham reyndu stíft að jafna leikinn þá voru það WBA menn sem náðu að bæta við marki á lokamínútunum. Beattie kom boltanum í netið eftir gott samspil milli Cech og Morrison og lítið sem Gomes gat gert við því. Leiknum lauk því með 2-0 sigri heimamanna.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate, Ekotto, Lennon, Jenas, Zokora (Campbell), Bentley (O´Hara), Modric (Bale), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Gunter, Taarabt, Obika.