Tottenham vann sigur í sínum fyrsta leik á nýju ári. Tók liðið á móti Wigan á White Hart Lane í 64 liða úrslitum FA bikarkeppninnar og lauk leiknum með 3-1 sigri heimamanna. Pavlyuchenko kom Tottenham yfir og Modric bætti öðru marki við áður en Camara náði að minnka muninn fyrir Wigan. Pavlyuchenko gulltryggði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Tottenham er því komið áfram í 32 liða úrslit bikarsins og eru mótherjar næstu umferðar Manchester United.
Harry gerði nokkra breytingu á liðinu og helst vakti athygli að hann kaus að spila leikkerfið 4-4-2 en hann hefur ekki verið iðinn við að nota það kerfi. Í markinu stóð Gomes og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Woodgate og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Zokora, Modric og O´Hara og frammi léku þeir Pavlyuchenko og Bent. Á bekknum sátu Alnwick, Gunter, Ghaly, Lennon, Taarabt, Boateng og Campbell.
Fyrsta færi leiksins fengu Wigan menn þegar Camara skallaði fyrirgjöf frá Valencia rétt framhjá markinu. Þetta reyndist hættulegasta færi þeirra í fyrri hálfleik. Því það sem eftir lifði hálfleiksins virtust leikmenn Tottenham mun nær því að skora. Eftir sjö mínútna leik fékk Modric færi á mörkum vítateigsins en skot hans fór framhjá markinu. Á 19.mínútu fengu leikmenn Tottenham aukaspyrnu eftir að brotið var á Pavlyuchenko fyrir utan teiginn. Bale tók spyrnuna en hitti ekki á rammann. Tveimur mínútum síðar fékk liðið aðra aukaspyrnu sem Bentley tók en leikmaður Wigan komst í veg fyrir skotið. Boltinn barst þó aftur til Bentley sem gaf fyrir markið og þar munaði litlu að Kilbane skoraði sjálfsmark þegar hann reyndi að verjast fyrirgjöf Bentleys. Á 28.mínútu neyddist Harry til að gera breytingu á liðinu þegar Bent varð fyrir meiðslum og treysti sér ekki til að halda áfram. Campbell kom þá inná í hans stað. Undir lok fyrri hálfleiks fengu leikmenn Tottenham tvö góð færi til að ná forystu í leiknum, Modric og Bentley áttu þau. En boltinn vildi þó ekki inn og staðan var því jöfn í hálfleik 0-0.
Eftir aðeins sex mínútna leik í seinni hálfleik var komið að fyrsta marki leiksins. Campbell fékk góða sendingu inn fyrir frá Bale en Kingson í marki Wigan braut á Campbell í eigin vítateig og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi réttilega vítaspyrnu. Pavlyuchenko steig á vítapunktinn og skorað fyrsta mark liðsins á nýju ári af miklu öryggi og hans áttunda eftir félagaskipti hans. Á 56.mínútu fékk Campbell sendingu frá Pavlyuchenko og skaut að marki en Kingson varði meistaralega. Tíu mínútum síðar fékk Pavlyuchenko færi til að bæta við marki en skot hans fór rétt framhjá markinu. Hann fékk aftur svipað færi þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en boltinn fór sömu leið, framhjá markinu. Einungis mínútu síðar náðu leikmenn Tottenham loksins að bæta við öðru marki og í þetta skiptið var það Modric með sitt þriðja mark fyrir félagið. Corluka sendi boltann á O´Hara sem þrumaði að markinu en boltinn hafnaði í stönginni og barst út í teiginn þar sem Modric átti ekki í vandræðum með að skalla í autt markið. Staðan því orðin 2-0 fyrir heimamenn. Leikmenn Wigan virtust hressast aðeins við það að lenda tveimur mörkum undir og áttu tvö góð færi sem Gomes varði vel. En þegar tvær mínútur voru til leiksloka tókst þeim þó að koma knettinum framhjá Gomes í markinu og var það Camara sem skoraði markið. En markið kom þó of seint og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að jafna á lokamínútunum þá voru það leikmenn Tottenham sem bættu við marki. Zokora tók á sprett upp allan völlinn og gaf á Pavlyuchenko sem skaut framhjá Kingson í markinu. Staðan því orðin 3-1 og urðu það lokatölur leiksins. Liðið er því komið í 4. umferð bikarsins og mætir næst Manchester United á Old Trafford.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate, Bale, Bentley, Zokora, Modric (Lennon), O´Hara, Bent (Campbell), Pavlyuchenko. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Ghaly, Gunter, Taarabt og Boateng.






