Tap í bragðdaufum leik

0
621

Tottenham tapaði fyrir Wigan þegar liðið mætti í heimsókn á JJB leikvanginn. Var þetta fyrsti leikur Defoe fyrir Tottenham eftir árs fjarveru en honum tókst ekki að skora í fyrsta leiknum sínum í þetta skiptið, líkt og hann hefur ávallt gert þegar hann hefur gengið til liðs við nýtt lið. Aðeins eitt mark skildi liðin að og var það Figueroa sem skoraði markið í uppbótartíma eftir hornspyrnu. Tottenham er því í fallsæti og mikil barátta fyrir höndum.

 

Harry gerði töluverðar breytingar og lagði upp með leikskipulag sem hefur ekki verið reynt í vetur, nokkurs konar 5-3-2. Gomes stóð í markinu og vörnin var skipuð þeim Corluka, Dawson, King, Woodgate og Bale, þar sem King lék aðeins fyrir framan vörnina. Á miðjunni spiluðu þeir Zokora, Modric og O´Hara og frammi þeir Pavlyuchenko og Defoe. Á bekknum sátu þeir Cesar, Jenas, Lennon, Bent, Huddlestone, Bentley og Campbell.

 

Leikmenn Tottenham fengu gott færi á upphafsmínútum leiksins þegar Bale tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn. Þar skallaði King boltann í áttina að markinu en Kirkland náði ekki að grípa boltann. Dawson reyndi þá að skalla frákastið en Kirkland náði að kýla boltann aftur fyrir og Tottenham fékk því annað horn en Kirkland stóð sig betur í því og náði boltanum. Stuttu síðar átti O´Hara skot rétt framhjá eftir að Modric tók snögga aukaspyrnu. Á hinum enda vallarins missti Zokora boltann til Palacios sem gaf á Zaki inni í teig Tottenham og var hann nálægt því að skora en þá kom Dawson á fleygiferð og bjargaði í horn. Dawson átti svo tilraun að marki á hinum enda vallarins en Kirkland varði vel. Taylor og Zaki fengu svo ágætis færi úr aukaspyrnum en boltinn fór framhjá í bæði skiptin. Wigan menn náðu nokkurri yfirhönd í leiknum þegar leið að hálfleik og á 38.mínútu voru þeir nálægt því að skora fyrsta mark leiksins. Zaki gaf fyrirgjöf inn í teiginn og Woodgate náði að skalla boltann. En boltinn barst til Heskey sem skaut að markinu en boltinn hafnaði í maga Gomes og þaðan framhjá markinu. Staðan var því jöfn 0-0 í hálfleik.

 

Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt og þeim fyrri lauk, Wigan menn mun sterkari og líklegri til að skora. Harry kaus því að gera sína fyrstu skiptingu frekar snemma, eða strax á 53. mínútu. Tók hann þá Pavlyuchenko af velli og inná í hans stað kom Darren Bent. Stuttu síðar mæddust bæði Gomes og Dawson líttillega, Dawson fékk spark í hausinn og Gomes virtist togna í læri. En báðir héldu þeir þó áfram og þegar um klukkustund var liðin af leiknum gerði Harry aðra skiptingu, Modric fór af velli og Lennon kom inná í hans stað. Við það breyttist leikskipulag liðsins í 4-4-2. Leikmenn Wigan héldu áfram að sækja og leikmenn Tottenham fengu að finna fyrir mótherjum sínum. Bale fékk olnbogaskot í andlitið og Dawson fékk annað höfuðhögg og þurfti að fara af velli nokkuð vankaður. Jenas kom inná í hans stað sem þýddi að Gomes þurfti að standa í markinu út leikinn þrátt fyrir að finna fyrir eymslum í læri. Bæði lið reyndu að pota inn marki á lokamínútunum og voru Wigan menn mun líklegri. Þeim tókst svo ætlunarverk sitt þegar í uppbótartíma var komið þegar Figueroa skallaði í netið eftir hornspyrnu. Leiknum lauk því með sigri Wigan manna, 1-0, og er því Tottenham í fallsæti sem stendur með 20 stig og ljóst að hörð barátta er fyrir höndum ætli liðið að halda sér í deildinni.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson (Jenas), Woodgate, King, Bale, Zokora, Modric (Lennon), O´Hara, Pavlyuchenko (Bent), Defoe. Ónotaðir varamenn: Cesar, Bentley, Campbell, Huddlestone.