Cudicini gengur til liðs við félagið

0
783

Tottenham tilkynnti í hádeginu að félagið hefði fengið markvörðinn Carlo Cudicini til liðs við félagið á frjálsri sölu. Cudicini var í herbúðum Chelsea og átti hálft ár eftir af samningi sínum. Chelsea leysti hann þó undan samningi þar sem hann hafði sýnt félaginu mikla hollustu enda var hann þar í tæp 10 ár. Þessi 35 ára gamli leikmaður lék 210 leiki fyrir Chelsea en hafði áður spilað bæði með AC Milan og Lazio. Hann gengur nú til liðs við Tottenham og veitir þar með Gomes harða samkeppni. Mögulega líður ekki á löngu þar til stuðningsmenn sjá hann í leik þar sem hann skrifaði undir í tíma til að vera löglegur með liðinu annað kvöld gegn Stoke.

 

Við bjóðum Cudicini velkominn til félagsins.