Góður útisigur

0
801

Tottenham heimsótti Aston Villa á Villa park á sunnudaginn. Aston Villa hefur verið að standa sig gífurlega vel í vetur og er enn í baráttu um 4.sætið í deildinni en það gefur sæti í umspili um Meistaradeildina. Misstu þeir Arsenal upp fyrir sig á laugardaginn og var því mikilvægt fyrir þá að sigra leikinn. Tottenham er hins vegar enn í baráttu um að halda sér í deildinni og þurfti því einnig á sigri að halda. Það fór svo að Tottenham vann góðan útisigur 1-2, en það voru þeir Jermaine Jenas og Darren Bent sem skoruðu mörk Tottenham en John Carew minnkaði muninn  fyrir Villa. Með sigrinum plantaði Tottenham sér í 11. sæti deildarinnar.

Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu frá síðasta leik og ætti það ekki að koma nokkrum á óvart þar sem hann hefur verið iðinn við að gera breytingar á liðinu í vetur. Í markinu stóð þó Gomes sem fyrr enda búinn að standa sig ágætlega upp á síðkastið. Vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Zokora, Woodgate, King og Ekotto og á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Palacios og Modric. Framherjapar dagsins voru þeir Keane og Bent. Á bekknum sátu þeir Cudicini, Corluka, Dawson, Bentley, O´Hara, Huddlestone og Pavlyuchenko.

 

Leikurinn var hraður og spennandi allt frá fyrstu mínútu og það voru einungis liðnar 4 mínútur af leiknum þegar fyrsta mark leiksins var skorað. Modric sendi boltann yfir á Lennon á hægri kantinum og hann gaf sendingu inn í teiginn. Friedel náði að kýla boltann en þó ekki lengra en út í teiginn þar sem Jenas var réttur maður á réttum stað og skallaði í netið. Staðan orðin 0-1 gestunum í vil. En leikmenn Villa voru ekki á því að gefast upp og áttu þeir Petrov og Barry báðir möguleika á að jafna metin stuttu síðar en hvorugum tókst að koma boltanum í netið. Young var sprækur á vinstri kanti Villa manna og átti Zokora í miklum vandræðum með að halda honum í skefjum og fékk m.a. gult spjald snemma leiks fyrir brot á honum. Það kom því engum á óvart að Redknapp ákvað að taka Zokora út af þegar um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og inná í hans stað kom Corluka. Jenas, Bent og Keane áttu svo allir hálffæri undir lok fyrri hálfleiks en á lokamínútunum fékk Modric gott færi en Friedel náði að verja skot hans. Á hinum enda vallarins átti Heskey skalla að marki sem hafnaði í þverslánni.  En staðan var 0-1 í hálfleik og voru það góð tíðindi fyrir Tottenham því skv. tölfræðinni hefur Tottenham ekki tapað leik undir stjórn Harry ef liðið er yfir í hálfleik.

 

Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri hófst, þe. mark eftir aðeins fjórar mínútur. Lennon tók  á sprett og gaf boltann á Palacios inni í teignum. Hann skaut þrumuskoti að markinu sem Friedel varði glæsilega en hann náði einungis að slá boltann aftur út í teiginn. Þar náði Keane boltanum og skaut að markinu framhjá Friedel og svo kom Bent á hlaupum og potaði boltanum inn í markið. Staðan því 0-2 fyrir Tottenham. Seinna markið setti heimamenn nokkuð út af laginu og náðu leikmenn Tottenham nokkurri yfirhönd í leiknum þar sem Lennon og Bent voru stöðug ógn með hraða sínum. O´Neill brást við stöðunni með því að gera breytingu á liðinu, Knight fór útaf og Carew kom inná í hans stað. Modric átti þó næsta hættulega færi en Friedel varði enn á ný glæsilega. Á hinum enda vallarins gerði Gomes vel þegar Petrov komst í færi og átti Gomes góðan leik, þar sem hann virtist mun öruggari í markinu en í mörgum öðrum leikjum. Þegar átta mínútur voru til leiksloka gerði Harry aðra breytingu á liðinu. Modric fór af velli og O´Hara kom inná í hans stað. Þegar sex mínútur voru til leiksloka náðu Villa menn svo að minnka muninn. Milner gaf góða sendingu fyrir markið þar sem Carew var vel staðsettur á fjærstönginni og skallaði boltann framhjá Gomes í markinu. Villa menn reyndu svo ákaft að jafna leikinn en það tókst ekki og lokatölur því 1-2, Tottenham í vil. Var þetta fjórði útisigur liðsins í deildinni í vetur og lyfti liðinu upp í 11.sætið.

 

Lið Spurs: Gomes, Zokora (Corluka), Woodgate, King, Ekotto, Lennon, Jenas, Palacios, Modric (O´Hara), Bent, Keane. Ónotaðir varamenn: Cudicini, Dawson, Bentley, Huddlestone, Pavlyuchenko.

 

SAJ