Tap í síðasta leiknum

0
687

Fyrir leikinn gegn Liverpool átti Tottenham enn möguleika á að ná 7 sætinu sem gaf þáttökurétt í UEFA keppninni. Til þess þurfti Tottenham að vinna Liverpool og treysta á að Everton myndi vinna Fulham (sem varð svo raunin). Það áttu þó fæstir von á því að Liverpool myndi sýna Spurs einhverja linkind enda voru þeir í baráttu við Chelsea um annað sætið og vildu að sjálfsögðu enda tímabilið á heimavelli með sigri. Auk þess var þetta kveðjuleikur Sami Hyypia, sem hefur átt mikinn þátt í árangri Liverpool síðustu árin, og ljóst að þeir vildu kveðja hann með sæmd. Stuðningsmenn Tottenham héldu þó tangarhaldi í vonina um sigur þar sem Tottenham hafði í tvígang sigrað Liverpool á tímabilinu. Rafa Benitez stillit upp sínu sterkasta liði og ljóst löngu fyrir leik að Liverpool ætluðu sér sigur í þessum leik. Harry Redknapp gerði 3 breytingar á liðinu sem mætti Manchester City í síðustu umferðinni. Woodgate, Huddlestone og Pavlyuchenko viku út fyrir Hutton, Bale og Zokora. Robbie Keane var í fremstu víglínu og hefði væntanlega viljað eiga stórleik fyrir framan Rafa Benitez stjóra Liverpool, en Rafa virtist hafa misst trúna á Keane í janúar þegar Keane var seldur frá Liverpool.

Leikurinn fór fjörlega af stað og því miður fyrir Tottenham var aðal fjörið á vallarhelmingi Spurs. Það var strax á upphafsmínútunum ljóst að Liverpool ætlaði ekki að láta gestina fá neitt upp í hendurnar. Tottenham varð fyrir áfalli tiltölulega snemma í leiknum þegar Jenas þurfti að fara af velli og í hans stað kom David Bentley sem hefur ekki sést inni á vellinum frá því í byrjun mars. Tottenham fékk nokkur hálffæri í fyrri hálfleiknum, en ekkert sem Reina í marki Liverpool þurfti að hafa miklar áhyggjur af. Á 31. mínútu dró svo til tíðinda þegar Torres skallaði boltann eftir fyrirgjöf frá Dirk Kuyt í innanverða þverslánna og inn. Liverpool var því komið í vænlega stöðu og virtist ætla að gulltryggja annað sætið.  Defoe átti besta tækifæri Tottenhammanna þegar hann fékk sendingu inn fyrir vörn Liverpool, en Reina var vel á verði í markinu og kom í veg fyrir að Defoe jafnaði metin. Staðan í hálfleik því 1-0 fyrir gestgjafana í Bítlaborginni. Tottenham var þó enn inní leiknum þó Liverpool hafi verið ögn sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.

 

Leikmenn Tottenham fengu þær upplýsingar í hálfleik að Fulham væri að tapa leiknum gegn Everton og því þurfti Tottenham aðeins að vinna leikinn til að tryggja sér farseðilinn í UEFA keppnina á næsta tímabili. Það var þó hægara sagt en gert þar sem Liverpool hafa verið óstöðvandi á heimavelli í vetur. Seinni hálfleikurinn fór af stað líkt og sá fyrri. Leikmenn Tottenham voru aftarlega á vellinum og vörðust sóknum Liverpool. Tottenham fékk kjörið tækifæri á 56. mínútu þegar brotið var á Modric rétt fyrir utan vítateig Liverpool. Gareth Bale tók spyrnuna sem fór rétt yfir markið. Á 64 mínútu varð Hutton fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Kuyt tók skot eftir sendingu frá hægri og boltinn hafði viðkomu í Hutton áður en hann fór í netið. Tveimur mínútum síðar átti Gerard hörkuskot úr nánast vonlausu færi sem fór framhjá Gomes og kastaðist af innanverðri stönginni og út í teiginn. Á 77. mínútu gaf Robbie Keane fyrirliði Spurs áhangendum Tottenham vonarneista þegar hann sá við rangstöðugildru Liverpool eftir sendingu frá Modric og smellti knettinum undir Reina í markinu og í netið. Keane sýndi fyrrum félagi sínu til 6 mánaða virðingarvott með því að fagna ekki markinu, og fékk klapp frá áhorfendum beggja liða. Það tók hinsvegar Liverpool ekki nema 4 mínútur að slökkva vonarneista Tottenham þegar Benayoun skoraði 3 og síðasta mark leiksins.
Stuðningsmenn beggja liða gáfu Hyypia góðar viðtökur þegar hann kom inná völlinn á 84. mínútu. Borðar með hlýjum skilaboðum til Hyypia sáust allstaðar á vellinum og stuðningsmenn Liverpool kyrjuðu söngva honum til heiðurs það sem eftir lifði leiks. Hyypia var nálægt því að skora mark síðar í leiknum en honum varð ekki kápan úr því klæðinu.

Segja má að tímabil Tottenham hafi endað líkt og það byrjaði, með miklum væntingum sem urðu að engu.

Byrjunarliðið: Gomes, Hutton, Corluka, King, Ekotto, Modric, Jenas (Bentley), Zokora, Bale (Bent), Keane, Defoe(Pavlyuchenko)
Varamenn: Cudicini, Bent, Bentley, Pavlyuchenko, Gunter, Chimbonda, Campbell

 

EKG