Tottenham hefur ákveðið að framlengja ekki samning nokkra leikmanna liðsins. Þar ber hæst að nefna Ricardo Rocha sem kveður klúbbinn eftir 3 tímabil og 18 leiki með liðinu.
Auk Rocha hafa þeir Simon Dawkins, Kyle Fraser-Allen, Cian Hughton, Danny Hutchins, David Hutton, Jacques Maghoma og Takura Mtandari úr varaliði liðsins einnig kvatt félagið.
Úr unglingaliðinu kveðja þeir Saulo Asajile, Mark Clare, James Dalton og Ajet Shehu.
Við óskum öllum þessum leikmönnum velfarnaðar og vonum að þeir eigi sér bjarta framtíð með öðrum liðum.






