Tímabilið byrjað á sigri

0
698

Tottenham lék sinn fyrsta leik á nýju tímabili þegar liðið tók á móti Liverpool á White Hart Lane á sunnudaginn. Tottenham hefur byrjað illa á síðustu tímabilum og ekki náð að sigra í fyrsta leik tímabilsins í fjögur ár. Liverpool menn áttu hins vegar gott tímabil í fyrra og miklar væntingar gerðar til liðsins í ár. Leikurinn var ansi spennandi og nóg um marktækifæri en leiknum lauk með sanngjörnum sigri Tottenham 2-1 en mörk Tottenham skoruðu þeir Benoit-Assou Ekotto og Sebastien Bassong, en þetta var fyrsti leikur þess síðarnefnda fyrir félagið. Báðir voru þeir að skora sín fyrstu mörk fyrir Tottenham. Mark Liverpool skoraði Steven Gerrard úr vítaspyrnu.

 

Harry hafði úr nokkuð stórum hópi af leikmönnum að velja fyrir leikinn þó nokkuð sé um meiðsli hjá liðinu, sérstaklega meðal miðvarðanna. Bassong var sá eini af þeim leikmönnum sem keyptir hafa verið í sumar sem byrjaði leikinn en Crouch byrjaði á bekknum. Liðið var þannig skipað. Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, King, Bassong og  Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Palacios og Modric og framherjaparið í fyrsta leik var skipað þeim Defoe og Keane. Á bekknum sátu þeir Cudicini, Hutton, Naughton, Bentley, O´Hara, Pavlyuchenko og Crouch.

 

Leikurinn byrjaði frekar rólega og fór leikurinn að mestu fram á miðjum vellinum. Bæði lið reyndu að sækja en lítið bit var í sóknum beggja liða og fá marktækifæri fyrsta hálftíma leiksins. En þegar um hálftími var liðinn af leiknum fékk Keane sannkallað dauðafæri. Palacios sendi boltann fyrir markið á Modric en hann gaf boltann fyrir markið á Keane sem stóð einn og óvaldaður inni í markteig og skallaði að auðu markinu. En Reina náði til boltans á ótrúlegan hátt og bjargaði sínum mönnum. Stuttu síðar var Keane aftur á ferðinni og var nálægt því að opna markareikninginn þetta tímabilið. Modric sendi góða sendingu á Keane inni í vítateignum, þar sem hann reyndi svo að vippa boltanum yfir Reina. En Reina kom Liverpool mönnum enn og aftur til bjargar og náði að teigja sig í boltann og verja skotið frá Keane aftur fyrir endamörk. Úr hornspyrnunni náði Defoe góðum skalla á markið en boltinn fór rétt framhjá. Þegar rétt rúmlega 40 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleiknum fékk Keane svo enn eitt færið þegar Huddlestone skallaði boltann til hans inni í vítateignum en skot Keane fór langt yfir markið. En það var svo loks á 44.mínútu að leikmenn Tottenham náðu forystu í leiknum, fyllilega verðskuldað. Palacios tók á sprett upp völlinn og var að nálgast vítateiginn þegar hann var felldur og dómarinn dæmdi aukaspyrnu. Huddlestone tók spyrnuna en skot hans fór beint í varnarvegginn. En boltinn barst aftur tilbaka þar sem Ekotto stóð við hlið Huddlestone og hann hamraði boltann í netið, óverjandi fyrir Reina í markinu. Staðan því orðin 1-0 fyrir Tottenham og þannig voru hálfleikstölur.

 

Seinni hálfleikur byrjaði fjöruglega og enda leikmenn Tottenham fullir sjálfstrausts og æstir í að bæta við marki en að sama skapi voru leikmenn Liverpool staðráðnir í að jafna leikinn og spila til sigurs. Leikmenn Tottenham voru þó öllu sprækari og var Lennon sérstaklega sprækur á hægri kantinum og átti nokkra flotta spretti. Leikmenn Liverpool reyndu þó að sækja og Gerrard átti skot að marki af löngu færi en boltinn fór rétt framhjá stönginni. Stuttu síðar átti Palacios þrumuskot að marki Liverpool en enn og aftur var Reina vel vakandi og náði að pota boltanum yfir þverslánna. En þegar um klukkustund var liðin af leiknum, fengu Liverpool menn vítaspyrnu. Johnson náði að stinga sér inn fyrir vörn Tottenham og var staðsettur hægra megin í vítateignum. Gomes hljóp út í teiginn og reyndi að ná til boltans en var því miður of seinn og felldi Johnson. Dómarinn var ekki í vafa og dæmdi réttilega vítaspyrnu. Gerrard steig á vítapunktinn og skoraði örugglega, staðan því orðin jöfn 1-1. En það tók leikmenn Tottenham aðeins nokkrar mínútur að jafna leikinn. Brotið var á leikmanni Tottenham nokkuð fyrir utan teiginn og dómarinn dæmdi aukaspyrnu. Modric tók spyrnuna og gaf góðan bolta inn í teiginn. Þar hoppaði Bassong manna hæstur umkringdur þremur Liverpool mönnum og skallaði af öryggi í netið. Sannkölluð draumabyrjun hjá Bassong fyrir Tottenham en þetta var fyrsti alvöru leikur hans fyrir liðið eftir félagaskipti hans frá Newcastle fyrir viku síðan og er hann strax búinn að opna markareikninginn. Staðan því orðin 2-1. Stuttu síðar átti Keane svo enn eitt skotið á markið, nú af löngu færi, en Reina sá við honum. Var þetta síðasta færi hans í leiknum því Harry kaus að skipta Crouch inná og Keane fór af velli í hans stað. Á síðasta korteri leiksins sóttu leikmenn Liverpool aðeins meira og Torres og Gerrard komu sér í ágæt færi en vörn Tottenham steig ekki feilspor og Gomes var eins og klettur þar fyrir aftan. Þegar um 10 mínútur voru til leiksloka komst Voronin í ágætis færi nánast einn á móti markverði en Ekotto var snöggur til baka og náði að skýla boltanum sem Gomes greip örugglega. Leikmenn Liverpool vildu meina að Ekotto hefði hrint Voronin og vildu fá víti en dómarinn var ekki á sama máli. Önnur skipting Tottenham í leiknum kom á 83. mínútu en þá fór Modric af velli og O´Hara kom inná í hans stað. Pavlyuchenko kom svo inná á lokamínútu venjulegs leiktíma í stað Defoe. En mörkin urðu ekki fleir í leiknum og hirtu leikmenn Tottenham því öll þrjú stigin og voru þeir vel að sigrinum komnir.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, King, Bassong, Ekotto, Lennon, Huddlestone, Palacios, Modric (O´Hara), Keane (Crouch), Defoe (Pavlyuchenko). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Hutton, Naughton, Bentley.