Markaregn í stórskemmtilegum leik

0
650

Deildarkeppnin fór aftur af stað um helgina eftir tveggja vikna hlé sökum landsleikja. Tottenham fékk Wigan í heimsókn á sunnudaginn og var það mikilvægt fyrir liðið að ná öllum þremur stigunum þar sem úrslit annarra leikja deginum áður voru liðinu í hag, þe. helstu keppinautarnir töpuðu stigum. En gengi Wigan manna hefur verið upp og ofan í vetur, þeir hafa þurft að þola þunga skelli en einnig náð góðum úrslitum gegn sterkum liðum og má þar t.d. nefna sigur á Chelsea og Aston Villa. Því stefndi allt í spennandi leik sem gat farið hvernig sem er. Leikurinn reyndist svo hin mesta skemmtun þar sem Tottenham fór á kostum og lauk leiknum með 9-1 sigri liðsins. Er þetta stærsti sigur Tottenham í 32 ár og  annar stærsti sigur liðs frá því að Úrvalsdeildin var stofnuð. Mörk Tottenham skoruðu þeir Crouch, Defoe(5), Lennon, Bentley og Kranjcar. Með sigrinum komst liðið aftur upp í 4. sæti deildarinnar og er nú jafnt erkifjendunum í Norður-London að stigum en með lakari markamun.

 

Harry gerði þrjár breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Sunderland fyrir hálfum mánuði. Lennon var búinn að jafna sig á ökklameiðslum sínum og kom inn í liðið auk Kranjcar og Keane og Jenas viku fyrir þeim og tóku sæti á bekknum. Dawson tók sæti í vörninni í stað King sem var meiddur. Liðið var því þannig skipað að Gomes var í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Woodgate og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Huddlestone, Palacios og Kranjcar og frammi spiluðu þeir Crouch og Defoe. Bekkurinn var skipaður þeim Alnwick, Hutton, Bassong, Bentley, Jenas, Pavlyuchenko og Keane.

 

Leikmenn Tottenham komu mun ákveðnari til leiks og Crouch olli usla í vítateig Wigan manna strax frá fyrstu mínútu. Hann fékk tvö ágætis færi sem honum tókst ekki að nýta en á 8.mínútu leiksins var hann ekki í vandræðum með að klára færið og skoraði fyrsta mark leiksins. Defoe gaf sendingu á Lennon sem hljóp upp kantinn og gaf fyrir markið þar sem Crouch var vel staðsettur og skallaði boltann framhjá Kirkland í markinu. Staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil. Leikmenn Tottenham héldu áfram að sækja að marki Wigan manna og Kirkland þurfti að vera vel vakandi í markinu. Hann varði glæsilega tvö færi frá Defoe en Huddlestone komst einnig nálægt því að skora með þrumufleyg fyrir utan vítateig en boltinn fór rétt framhjá. Leikmenn Wigan sóttu aðeins í sig veðrið undir lok fyrri hálfleiksins en náðu þó ekki að skapa nein stór vandamál fyrir Gomes í marki Tottenham. Staðan í hálfleik var því 1-0 fyrir Tottenham.

 

Leikmenn Tottenham voru staðráðnir í að gera betur en í fyrri hálfleik og klára færin en engum datt í hug að leikurinn tæki þá stefnu sem raun bar vitni. Eftir aðeins fimm mínútna leik var Lennon enn á ferðinni á hægri kantinum, tók á sprett upp völlinn, gaf fyrir markið þar sem Defoe náði til boltans á undan varnarmanni Wigan og potaði honum í netið. Staðan orðin 2-0 fyrir Tottenham. Einungis þremur mínútum síðar var Defoe aftur á skotskónum eftir góða sendingu frá Palacios sem varnarmönnum Wigan mistókst að koma í veg fyrir. Staðan því orðin 3-0 heimamönnum í vil. En eitthvað virtust leikmenn Tottenham verða kærulausir því þremur mínútum síðar, á 57.mínútu leiksins, minnkuðu leikmenn Wigan muninn en mark þeirra var þó kolólöglegt. Rodallega hljóp upp vinstri kantinn og gaf langa sendingu á Scharner á fjarstönginni, en hann lagði boltann augljóslega fyrir sig með höndinni og skoraði af stuttu færi framhjá Gomes. Hvorki dómarinn né línuvörðurinn sáu atvikið og markið stóð því. Staðan orðin 3-1. En leikmenn Tottenham létu þetta ekki á sig fá og bættu við öðru marki í næstu sókn á eftir. Enn á ný var það hið magnaða teymi, Lennon og Defoe, sem hrelldu vörn Wigan manna. Lennon tók á sprett upp að endamörkum og gaf inn í teiginn þar sem Defoe smellhitti boltann og þrumaði honum framhjá Kirkland í markinu. Fullkomnaði hann þar með þrennu sína í þessum leik og var þetta önnur þrenna hans á tímabilinu en hann skoraði einnig þrjú mörk gegn Hull í ágúst. Er þetta í fyrsta sinn síðan tímabilið 1991-92 sem leikmaður Tottenham skorar tvær þrennur eða fleiri á sama tímabilinu. Staðan var því orðin 4-1 Tottenham í vil og lítil von fyrir leikmenn Wigan. En nóg var eftir af leiknum og leikmenn Tottenham voru hungraðir í fleiri mörk. Þegar um klukkustund var liðin af leiknum var loks komið að Lennon að koma boltanum í netið, en hann var nú þegar kominn með þrjár stoðsendingar. Crouch og Kranjcar sóttu upp völlinn og gáfu boltann svo út á kantinn á Lennon sem ákvað að skjót á markið úr þröngu færi en boltinn hafnaði í markinu og staðan orðin 5-1. Á 69.mínútu bætti Defoe svo við enn einu markinu eftir sendingu frá Corluka  og endurtók þar með afrek Robbie Keane úr leiknum gegn Burnley með því að skora 4 mörk í einum og sama leiknum. Staðan því orðin 6-1 Tottenham í vil. Harry kaus svo að gera 3 skiptingar á stuttum tíma. Fyrst fór Lennon af velli á 79.mínútu og inná í hans stað kom Bentley. Á 82.mínútur fór Ekotto af velli þar sem hann fann fyrir einhverjum óþægindum og inná í hans stað kom Bassong. Loka skiptingin var gerð á 85.mínútu þegar Palacios fór af velli og Jenas kom inná í hans stað. En Defoe var alls ekki hættur og bætti við sínu fimmta marki í leiknum á 87. mínútu þegar hann nýtti sér varnarmistök Wigan manna og átti ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið. Með þessu marki varð hann einungis þriðji leikmaðurinn í sögu Úrvalsdeildarinnar til að skora 5 mörk í leik en hinir tveir eru þeir Alan Shearer og Andy Cole. Hann mun þó vera sá fyrsti sem skorar 5 mörk í einum hálfleik, en það tók hann einungis 37 mínútur að skora þessi 5 mörk. Staðan því orðin 7-1 og sigurinn öruggur hjá heimamönnum.  En það hindraði þá ekki í að bæta við mörkum og á 88.mínútu vann Bentley aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Hann tók spyrnuna sjálfur og hamraði boltanum efst í annað markhornið, stórglæsilegt mark. Sumir fréttamiðlar hafa skráð markið sem sjálfsmark hjá Kirkland þar sem boltinn virðist fara af honum í markið. En staðan orðin 8-1 og þó var enn tími fyrir annað mark. Í uppbótartíma fékk Kranjcar boltann inn í teignum og þrumaði boltanum í toppnetið og innsiglaði þar með 9-1 sigur liðsins í stórskemmtilegum leik. Einungis Manchester United hefur afrekað stærri sigur í Úrvalsdeildinni þegar þeir unnu Ipswich 9-0 árið 1995. Jafnaði því liðið metið yfir flest mörk skoruð í einum leik.

 

Ljóst er að liðið getur spilað frábæran bolta á góðum degi og vonandi ná þeir að byggja ofan á þessum árangri í næsta leik en þá heimsækir liðið Aston Villa á Villa Park (nk. laugardag).

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate, Ekotto(Bassong), Lennon(Bentley), Huddlestone, Palacios(Jenas), Krancjar, Crouch og Defoe. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Hutton, Pavlyuchenko, Keane.

 

SAJ