Liðið fallið úr leik í Carling Cup

0
673

Tottenham heimsótti lið Manchester United á Old Trafford í 8 liða úrslitum Carling Cup, en þessi lið mættust í úrslitaleik bikarsins á síðasta tímabili þar sem Manchester menn höfðu sigur úr býtum í vítaspyrnukeppni. Bæði Redknapp og Ferguson gerðu töluverðar breytingar á liðunum og fengu bæði óreyndir og reyndir leikmenn að spreyta sig. Leikurinn var þó ekki hin besta skemmtun og frekar tíðindalítill en United menn höfðu sigur úr bítum, 2 mörk gegn engu og var það Gibson sem skoraði bæði mörkin. Tottenham er því fallið úr leik í Carling Cup.

 

Harry Redknapp gerði 5 breytingar á liðinu sem hóf leikinn gegn Aston Villa síðustu helgi og hélt áfram að leyfa þeim sem lítið hafa spilað í deildinni að spreyta sig í bikarnum. Bale, Bentley, Hutton, Keane og Jenas komu allir inn í byrjunarliðið sem var svona skipað: Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Palacios og Lennon og frammi byrjuðu þeir Keane og Defoe. Á bekknum sátu þeir Walker, Corluka, Naughton, Huddlestone, Rose, Crouch og Pavlyuchenko.

 

Leikmenn United byrjuðu leikinn betur og voru sókndjarfari á fyrstu mínútum leiksins. Anderson átti skot að marki á upphafsmínútunum en boltinn fór framhjá markinu. En leikmenn Tottenham fóru smátt og smátt að komast inn í leikinn og átti Defoe gott skot að marki sem Kuszczak varði vel. Bale og Jenas áttu einnig ágætisfæri en tókst ekki að nýta sér þau. Tottenham menn tóku öll völd á vellinum og sóttu stíft en náðu ekki að skapa sér nægilega góð færi. Það var því nokkuð gegn gangi leiksins þegar Anderson gaf boltann á Gibson frá vinstri kantinum og hann þrumaði boltanum að markinu framhjá Gomes og hafnaði því knötturinn í netinu. Staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil. Litlu munaði að þeir bættu strax við öðru marki þegar Obertan komst í færi en Gomes sá við honum. Á hinum enda vallarins fékk Defoe dauðafæri en skot hans að marki hafnaði í varnarmanni United. Keane fékk svo upplagt tækifæri til að jafna metin en tókst ekki að nýta sér það. Á 35. mínútu var Park ekki langt frá því að bæta við marki en Bale gerði vel í að varnarleiknum að þessu sinni. En þremur mínútum síðar gátu Tottenham lítið gert sér til varnar. Berbatov og Anderson unnu vel saman og sköpuðu gott tækifæri fyrir Gibson sem smellhitti boltann og skaut honum í horn marksins. Staðan orðin 2-0 og lítið sem benti til þess að leikmenn Tottenham myndu snúa blaðinu við. Defoe, Palacios og Bentley áttu allir skot að marki undir lok fyrri hálfleiks en enginn þeirra var nálægt því að skora. Staðan því 2-0 í hálfleik heimamönnum í vil.

 

Harry gerði strax eina skiptingu í hálfleik, Palacios fór af velli og Huddlestone kom inná í hans stað. Leikmenn United áttu þó fyrsta færi síðari hálfleiks en skot þeirra fór framhjá. Leikmenn Tottenham náðu svo aftur góðum kafla í seinni hálfleik þar sem Defoe, Keane og Bentley fengu allir ágætis færi en tókst þó ekki að koma boltanum í netið. Á 65. mínútu gerði Harry aðra skiptingu, Keane fór af velli og Crouch kom inná í hans stað. En þrátt fyrir nokkrar hálftilraunir náði hvorugt liðið að bæta við mörkum og lauk leiknum því með 2-0 sigri United manna sem eru nú komnir í undanúrslit bikarsins en Tottenham menn eru fallnir úr leik.

 

Lið Spurs: Gomes, Hutton, Dawson, Bassong, Bale, Bentley, Jenas, Palacios (Huddlestone), Lennon, Keane(Crouch), Defoe. Ónotaðir varamenn: Walker, Naughton, Corluka, Rose, Pavlyuchenko.

 

SAJ