Það biðu margir stuðningsmenn Tottenham spenntir eftir leik helgarinnar. Spurningin sem brann á allra vörum var hvernig leikmenn Spurs kæmu stemmdir eftir stórsigur gegn Wigan. Öllum var þó ljóst að Aston Villa myndi sýna meiri mótspyrnu en Wigan gerði í síðasta leik og fáir gerðu sér vonir um markatölur í líkingu við það sem sást á White Hart Lane helgina áður. Harry Redknapp hélt sig við sama byrjunarlið og í síðasta leik fyrir utan að hann þurfti að setja inn Bassong fyrir Woodgate sem var meiddur í nára. Liðið var því skipað þeim Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Lennon, Palacios, Huddlestone, Kranjcar, Crouch og fimm marka maðurinn frá því í síðasta leik Defoe. Fyrirliðinn Robbie Keane þurfti að gera sér tréverkið að góðu annan leikinn í röð.
Það var jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar, en á 4. mínútu leit fyrsta færi leiksins ljós. Ekotto átti sendingu inn í teiginn þar sem Kranjcar var mættur og náði góðu skoti sem Friedel sá seint en gerði vel með að slá boltann yfir markið. Á 9. mínútu dró svo til tíðinda. Samvinna Gomes og Ekotto kom í veg fyrir að boltinn færi yfir marklínuna, en boltinn barst til Agbonlahor sem náði að koma knettinum yfir línuna. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Stuttu síðar átti sér stað mikill darraðardans í vítateig Aston Villa. Huddlestone tók aukaspyrnu sem varnarmenn Villa tókst ekki að hreinsa nægilega vel í burtu og knötturinn datt fyrir Defoe sem átti skot sem Friedel varði vel, það var Dawson sem náði frákastinu og náði góðu skoti sem Cuellar bjargaði á línu. Á 29 mínútu átti Defoe fínt skot en knötturinn fór rétt yfir markið. Það var ljóst að Tottenham hafði unnið sig vel inn í leikinn eftir mark Villa manna og voru óheppnir að fara inn í hálfleikinn einu marki undir.
Það gerðist ekki margt markvert í upphafi síðari hálfleik. Tottenham menn fengu eitt gott færi á 49. mínútu. Kranjcar átti þá gott skot af 23 metra færi sem Friedel gerði vel með að verja. Á 70. mínútu vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu þegar boltinn virtist hafa farið í hönd Young. Dómarinn ansaði bænum Spursara ekki og lét leikinn halda áfram. Á 73. mínútu skoraði Defoe mark sem var dæmt af þar sem hann notaði höndina við að koma knettinum í netið. Á 77. mínútu kom skoruðu loks leikmenn Tottenham. Markið hafði legið í loftinu nær allan leikinn og þar var að verki varnartröllið Michael Dawson. Defoe var ekki langt frá því að innsigla sigur 10 mínútum síðar þegar Lennon átti frábæra fyrirgjöf inn í teig Villa manna. Cuellar sá hinn sami og hafði bjargað á línu fyrr í leiknum náði að teygja fótinn í boltann á undan Defoe sem hafði opið markið fyrir framan sig. Liðin skiptu með sér sitt hvoru dauðafærinu í uppbótar tímanum. Heskey átti hnitmiðað skot sem fór rétt yfir þverslánna og Defoe átti flott skot á 93. mínútu sem fór hársbreidd framhjá markinu. Lokatölur því 1-1 í leik þar sem Tottenham var betri aðilinn.
Liðið: Gomes, Corluka, Dawson, Woodgate, Ekotto, Lennon, Palacios (Jenas 66.), Huddlestone, Kranjcar (Keane 78.), Crouch, Defoe
EKG






