Tottenham tók á móti Fulham á White Hart Lane í vikunni. Fulham menn hafa ekki náð að fylgja eftir góðum árangri á síðustu leiktíð þegar þeir náðu að tryggja sér þátttöku í Evrópudeildinni, eins og keppnin kallast nú. Liðið hefur verið að berjast um miðja deild á sama tíma og Tottenham á í hörku baráttu um 4. sæti deildarinnar og mátti alls ekki við því að tapa stigum í þessari viðureign. Leiknum lauk með sanngjörnum sigri Tottenham, 2-0 og voru það þeir Peter Crouch og David Bentley sem skoruðu mörkin, sá síðarnefndi beint úr aukaspyrnu.
Harry gerði 4 breytingar á liðinu frá bikarleiknum gegn Leeds og má þar helst nefna að Bentley fékk sæti í byrjunarliðinu í fyrsta skipti síðan 1.desember. King, Corluka og Huddlestone komu allir aftur inn í liðið. Liðinu var því þannig uppstillt að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Dawson, King og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Palacios og Modric og frammi byrjuðu þeir Crouch og Defoe. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Hutton, Bassong, Jenas, O´Hara, Rose og Keane.
Leikmenn Tottenham byrjuðu leikinn mun betur og strax á fyrstu mínútu átti Huddlestone þrumuskot að marki en Schwarzer varði glæsilega. Eflaust kom það upp í huga margra stuðningsmanna að þetta yrði enn einn leikurinn þar sem markvörður andstæðinganna myndi eiga besta leik ferils síns, en það hefur verið raunin undanfarið. En varnarmenn Fulham voru ekki á því að gera leikmönnum Tottenham það auðvelt verkefni að dæla skotum á Schwarzer í markinu. Huddlestone fékk þó sæmilegt færi á 3.mínútu en skot hans fór beint í fangið á Schwarzer. Á 10.mínútu gaf Bale fína sendingu inn í teiginn á Crouch sem skallaði að markinu en boltinn fór rétt framhjá. Á 12. mínútu reyndi fyrst á Gomes í markinu þegar Gera gaf fyrir markið á Zamora en Gomes náði til boltans fyrst. Lenti hann þó í samstuði við Zamora og þurfti að fá meðhöndlun hjá sjúkraþjálfara liðsins en hann hélt áfram leiknum þrátt fyrir að virðast finnast fyrir talsverðum óþægindum. Eftir fjörugar upphafsmínútur tók við um stundarfjórðungs kafli þar sem lítið var um marktækifæri og leikurinn fór að mestu fram á miðjum vellinum. Þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum átti Bale fyrirgjöf fyrir markið þar sem litlu munaði að Schwarzer missti boltann úr höndum sér og Crouch var tilbúinn að pota boltanum inn í markið. En á 27. mínútu gat Schwarzer litla björg sér veitt þegar Crouch skoraði fyrsta mark leiksins. Bentley gaf góðan bolta inn í teiginn frá hægri kantinum en Schwarzer náði að kýla boltann frá hausnum á Crouch. Boltinn virtist stefna út af vellinum en Modric náði að vippa boltanum inn í markteiginn þar sem Crouch átti ekki í vandræðum með að koma honum í netið. Staðan orðin 1-0 Tottenham í vil. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks vörðust Fulham menn vel en áttu ekki hættuleg færi til að jafna metin. Huddlestone og Modric fengu báðir ágætis færi en boltinn hitti ekki á rammann hjá hvorugum þeirra. Staðan í hálfleik því 1-0 fyrir heimamenn.
Leikmenn Tottenham mættu ekki síður ákveðnir til leiks í seinni hálfleik, staðráðnir í því að bæta við forskot sitt í leiknum enda mikilvægt að fá þrjú stig í baráttunni um 4.sætið. Á 50.mínútu kom fyrsta hættulega færi þegar Palacios skallaði fyrirgjöf frá Bentley en boltinn fór rétt framhjá. Tveimur mínútum síðar átti Duff gott skot að marki Tottenham en Gomes varði vel. En þegar klukkustund var liðin af leiknum skoraði Bentley glæsilegt mark úr aukaspyrnu. Brotið var á Bale rétt fyrir utan teig vinstra megin. Bentley stillti boltanum upp og spyrnti boltanum að markinu. Boltinn smellhitti markið í fjærhorninu eftir viðkomu í varnarvegg Fulham manna. Staðan orðin 2-0 Tottenham í vil. Modric fékk svo sæmilegt færi og Bentley tók aðra aukaspyrnu stuttu síðar en í þetta skipti var Schwarzer vel vakandi og greip boltann af öryggi. Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka munaði litlu að Dawson næði að skalla boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bentley, en inn vildi boltinn ekki. Á 82.mínútu gerði Harry sína fyrstu skiptingu, Keane kom inná og Defoe fór af velli. Leikmenn Fulham reyndu að minnka muninn á lokamínútum leiksins og áttu Kamara og Davies báðir ágætis skot að marki en Gomes sá við þeim. Lokatölur leiksins því 2-0 fyrir Tottenham og þrjú dýrmæt stig í hús.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, King, Bale, Bentley, Huddlestone, Palacios, Modric, Crouch, Defoe(Keane). Ónotaðir varamenn: Alnwick, Hutton, Bassong, Jenas, O´Hara, Rose.
SAJ






