Sigur á Leeds í FA Cup

0
718

Tottenham heimsótti  Leeds á Elland Road í endurspili um sæti í fimmtu umferð FA bikarsins en fyrri leik liðanna á WHL lauk með 2-2 jafntefli þar sem Leeds menn jöfnuðu á lokamínútu leiksins. Bæði lið mættu í leikinn harðákveðin í að fara með sigur af hólmi og stuðningsmenn beggja liða sáu um magnað andrúmsloft. Leikmenn Tottenham stóðu á endanum uppi sem sigurvegarar, en þeir sigruðu með 3 mörkum gegn einu. Jermain Defoe skoraði öll mörk Tottenham.

 

Harry stillti upp sterku liði því ljóst var að þetta yrði erfiður leikur og því mikilvægt að stilla upp sínum besta mannskap. Hann gaf þó nokkrum yngri leikmönnum sæti á bekknum. Liðið var þannig skipað að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin var skipuð þeim Corluka, Dawson, Bassong og Bale. Á miðjunni léku þeir Bentley, Jenas, Huddlestone og Kranjcar og frammi léku þeir Defoe og Crouch. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Dervite, Modric, Palacios, Rose, Parrett og Fredericks.

 

Bæði lið byrjuðu leikinn af miklum krafti og eftir nokkur hálffæri á upphafsmínútunum komst Defoe ansi nálægt því að skora á 12. mínútu eftir sendingu frá Crouch en skot hans fór rétt framhjá. Þegar tæpar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum fengu leikmenn Leeds hörkufæri þegar Beckford skallaði að marki en boltinn hafnaði í þverslánni.  Defoe fékk svo dauðafæri á 25. mínútu þegar hann komst einn á móti markverði Leeds, en Ankergren náði til boltans áður en Defoe náði að koma honum í netið. Þremur mínútum síðar var Ankergren enn vel á varðbergi þegar Bale gaf góða sendingu inn í teig en boltinn hafnaði í varnarmanni Leeds og skipti um stellingu. En Ankergren var fljótur að kasta sér á boltann. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum komst Defoe einn inn fyrir vörn Leeds en varnarmaður Leeds var fast á hæla hans og tæklaði hann. Defoe féll í grasið rétt fyrir utan vítateiginn og vildi fá aukaspyrnu, sem hefði auk þess þýtt að leikmanni Leeds hefði verið vikið af leikvelli. En dómarinn var ekki sammála Defoe og dæmdi ekkert. Á 34.mínútu átti Defoe gott skot að marki eftir samspil við Huddlestone, en Ankergren náði að verja glæsilega. En tveimur mínútum síðar var lítið sem hann gat gert, annað en að hirða knöttinn úr eigin marki. Bentley átti góðan sprett upp hægri kantinn og gaf góða sendingu inn í teiginn. Þar náði Defoe til boltans og vitist ekki ná jafngóðu sparki og hann ætlaði sér. Boltinn hins vegar flaug inn efst í vinstra hornið og staðan orðin 0-1 Tottenham í vil. Leikmenn Leeds virtust spýta í lófana við þennan mótbyr og voru ákveðnir í að jafna leikinn. Á 38. mínútu fékk Michalik upplagt færi til að skora er hann skallaði að markinu en Gomes varði meistaralega. Bromby og Johnson fengu báðir hálffæri fyrir Leeds en í uppbótartíma náðu þeir svo að jafna leikinn. Howson gaf inn í teiginn á Beckford en Gomes varði skot hans. Boltinn barst þó út í teiginn á Becchio sem lagði boltann snyrtilega í netið. Staðan orðin 1-1 og þannig stóð í hálfleik.

 

Defoe og Crouch fengu ágætis færi á fyrstu 10 mínútum síðari hálfleiks en náðu ekki að stýra boltanum í netið. Á 56. mínútu fengu leikmenn Leeds gott færi til að komast yfir en skalli Michalik á markið hafði viðkomu í leikmanni Tottenham og lenti í öruggum höndum Gomes. Á hinum enda vallarins var Dawson nálægt því að skora með skalla eftir hornspyrnu en Ankergren náði að vippa boltanum yfir markið. Huddlestone átti svo þrumuskot að marki þegar rúmlega klukkustund var liðin af leiknum og stuttu síðar varði Ankergren vel þegar Bentley kaus að skjóta á markið eftir gott spil upp kantinn. Á 68.mínútu skoraði Defoe svo sitt annað mark í leiknum en það var dæmt af sökum rangstöðu. Staðan því enn 1-1. Eftir nokkur hálffæri náðu leikmenn Tottenham svo loks að koma boltanum í netið og var það enginn annar en Defoe sem skoraði markið. Jenas gaf góða sendingu á Bentley á hægri kantinum sem renndi boltanum fyrir markið þar sem Defoe gerði engin mistök og kom boltanum í netið. Staðan orðin 1-2 Tottenham í vil.  Þegar tæpar 5 mínútur voru til leiksloka átti Crouch skalla að marki sem hafnaði í þverslánni. Á lokamínútu venjulegs leiktíma fengu Leeds menn aukaspyrnu rétt fyrir utan teig sem Bromby náði að skalla að marki en boltinn fór rétt yfir. Í uppbótartíma fullkomnaði Defoe svo þrennu sína þegar boltinn barst til hans á eigin vallarhelmingi eftir stórsókn Leeds, hann tók á sprett upp allan völlinn, lék á Ankergren og skoraði af öryggi. Staðan orðin 1-3 og þannig urðu lokatölur leiksins. Tottenham er því komið í 5.umferð bikarsins og mæta Bolton þann 14.febrúar nk.

 

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Bale, Bentley, Jenas, Huddlestone, Kranjcar, Defoe, Crouch. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Dervite, Modric, Palacios, Rose, Parrett og Fredericks.

 

SAJ