Harry Redknapp og liðsmenn hans í Tottenham tóku á móti fyrrum liði Harrys, Portsmouth, á White Hart Lane í leik helgarinnar. Tottenham hefur verið á góðri siglingu undanfarið og stendur í harðri baráttu um fjórða sæti deildarinnar. Ekki er jafngóða sögu að segja af Portsmouth en þeir verma botnsæti deildarinnar og eru svo gott sem fallnir. Leikmenn Tottenham reyndust of sterkir fyrir lánlaust lið Portsmouth því þeir hirtu öll þrjú stigin úr þessari viðureign með 2-0 sigri, þar sem fyrrum leikmenn Portsmouth, þeir Crouch og Kranjcar, skoruðu mörk leiksins.
Enn setja meiðsli strik í reikninginn þegar kemur að liðsvali en Harry stillti upp sínu sterkasta liði gegn Portsmouth enda hvert stig dýrmætt í baráttunni um 4. sæti deildarinnar. Byrjunarliðið var þannig skipað að Gomes stóð í markinu og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim K.Walker, Dawson, Bassong og Bale. Var þetta fyrsti leikur Walker fyrir félagið en Corluka meiddist í leiknum gegn Fulham. Á miðjunni léku þeir Bentley, Huddlestone, Modric og Kranjcar og frammi hófu leikinn þeir Crouch og Eiður Smári. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Ekotto, Kaboul, Livermore, Palacios, Rose og Pavlyuchenko.
Leikurinn fór frekar rólega af stað og það var ekki fyrr en á 8. mínútu að fyrsta færið leit dagsins ljós. Þar var á ferð enginn annar en Eiður Smári sem skallaði að marki eftir fyrirgjöf frá Kranjcar en boltinn fór yfir markið. Hornspyrna Bentley var varin á marklínu en hann var einnig iðinn við fyrirgjafir inn í teig sem varnarmenn Portsmouth áttu í fullu fangi við að verjast. Á hinum enda vallarins varði Gomes vel skot frá Borre. Kranjcar átti svo misheppnað skot að marki eftir rúmlega 20 mínútna leik en á 27.mínútu dró til tíðinda. Bale tók á sprett upp vinstri væng vallarins og gaf fyrirgjöf inn í teiginn þar sem Crouch hoppaði manna hæstur og skallaði boltann í netið framhjá James í markinu. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Þegar tæpur hálftími var liðinn af leiknum átti Dawson skalla rétt yfir markið eftir aukaspyrnu og fimm mínútum síðar hafnaði boltinn tvisvar í þverslánni í stórsókn Tottenham. Huddlestone átti fyrst skot í þverslánna og boltinn barst því næst til Crouch sem átti einnig skot í þverslánna áður en leikmenn Portsmouth hreinsuðu frá. Á 41. mínútu bættu leikmenn Tottenham svo við öðru marki. Walker hljóp upp að endamörkum með boltann og gaf á Modric. Modric skaut að marki en skot hans fór í Mullins og þaðan til Kranjcar sem skoraði framhjá James í markinu. Brown fékk svo gott færi fyrir Portsmouth menn til að minnka muninn á lokamínútum fyrri hálfleiks en inn fór boltinn ekki og því staðan 2-0 í hálfleik, Tottenham í vil.
Strax í upphafi síðari hálfleiks þurfti að stöðva leikinn eftir að Hermann Hreiðarson, leikmaður Portsmouth og íslenska landsliðsins, sleit hásin og þurfti talsverða umönnun á vellinum áður en hann var borinn af velli sárþjáður. Lítið var um dauðafæri fyrsta korter síðari hálfleiks en þegar rúmlega klukkustund var liðin af leiknum þurfti Dawson að fara af velli sökum meiðsla og inná í hans stað kom Kaboul. Stuttu síðar komst Crouch í gott færi en varnarmenn Portsmouth voru vel vakandi. Á 67.mínútu gerði Harry aðra skiptingu, Kranjcar fór af velli og Ekotto kom inná í hans stað. Ekotto fór þá í vinstri bakvörðinn og Bale færði sig framar á vinstri kantinn. Á 78. mínútu komst Kanu í ágætt færi eftir mistök í vörn Tottenham en skot hans fór framhjá. Þegar um 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma gerði Harry sína þriðju og síðustu skiptingu þegar Eiður Smári fór af velli og Pavlyuchenko kom inná í hans stað. Bassong og Pavlyuchenko fengu báðir ágæt færi en James sá við þeim. Á lokamínútunum lentu tveir leikmenn Portsmouth í meiðslum, þeir James og Webber og þurftu báðir að fara af velli. Sökum allra meiðslanna í seinni hálfleik var 8 mínútum bætt við venjulegan leiktíma en hvorugt liðið náði að bæta við marki og því lauk leiknum með 2-0 sigri Tottenham.
Lið Spurs: Gomes, K.Walker, Dawson(Kaboul), Bassong, Bale, Bentley, Huddlestone, Modric, Kranjcar(Ekotto), Crouch, Guðjohnsen(Pavlyuchenko). Ónotaðir varamenn: Alnwick, Livermore, Palacios, Rose.
SAJ






