Tottenham heimsótti Sunderland á Stadium of Light í leik helgarinnar. Nú á lokaspretti leiktímabilsins er baráttan mikil um hvert stig í deildinni og var þessi leikur engin undantekning. Sunderland menn fóru þó að lokum með sigur af hólmi, 3-1, í ansi fjörugum leik þar sem fyrsta markið leit dagsins ljós á fyrstu mínútu leiksins, þrjár vítaspyrnur voru dæmdar á Tottenham í leiknum og Darren Bent misnotaði tvær þeirra gegn sínum fyrri félögum. En með tapinu féll Tottenham úr 4.sætinu og situr nú í því fimmta þegar 6 leikir eru eftir.
Harry Redknapp gerði nokkrar breytingar á liðinu milli leikja, líkt og undanfarnar vikur, þar sem meiðsli hafa áhrif á liðsvalið. Byrjunarliðið að þessu sinni var skipað þannig að Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Walker, Kaboul, Bassong og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Bentley, Palacios, Modric og Bale og framlínan var skipuð þeim Pavlyuchenko og Eið Smára. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Dervite, Kranjcar, Livermore, Rose, Crouch og Defoe.
Leikurinn hófst á ansi fjörugum nótum því strax á fyrstu mínútu leiksins kom fyrsta mark leiksins. Richardson tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn. Campbell skallaði að marki en Gomes náði að blaka boltanum frá markinu. Boltinn barst þó ekki lengra en fyrir fæturna á Darren Bent sem átti ekki í vandræðum með að skora og fagnaði ógurlega því að hafa skorað gegn sínum fyrri félögum. Staðan því orðin 1-0 fyrir heimamenn. Um fimm mínútum síðar munaði litlu að Pavlyuchenko jafnaði metin en þá komst hann einn á móti markverði Sunderland. Hann missti þó stjórn á boltanum og náði því ekki að nýta sér þetta fína færi. Á 14. mínútu vildu leikmenn Sunderland fá vítaspyrnu þegar Henderson féll inni í teig eftir baráttu við Ekotto en dómarinn dæmdi réttilega að leikurinn skyldi halda áfram. Rúmlega 10 mínútum síðar átti Bentley góðan skalla á markið en Gordon varði vel frá honum. Á 28. mínútu dæmdi dómari leiksins svo vítaspyrnu á Tottenham eftir að boltinn hafnaði í hönd Kyle Walker. Gomes hafði varið skot frá Malbranque en Walker varð fyrir því óláni að frákastið hafnaði í hönd hans og því réttilega dæmd vítaspyrna. Darren Bent steig á vítapunktinn og skoraði naumlega framhjá Gomes sem skutlaði sér í rétt horn en náði ekki til boltans nógu tímanlega. Staðan því 2-0 heimamönnum í vil. Stuttu síðar fékk Campbell svo ágætt færi til að auka enn á forskot Sunderland en skalli hans fór naumlega framhjá marki Spurs. Þegar um 8 mínútur voru til leikhlés fékk Eiður Smári gott tækifæri til að minnka muninn þegar boltinn barst til hans eftir fyrirgjöf frá Bentley. Gordon náði þó að verja boltann út í teiginn þar sem varnarmenn Sunderland hreinsuðu frá. Á 40.mínútu leit út fyrir að Sunderland myndi gera út um leikinn þegar dómarinn dæmdi aðra vítaspyrnu þegar Campbell féll inn í teig eftir að hafa hlaupið þar á Modric. Bent fór á ný á vítapunktinn og skaut nú í hitt hornið en í þetta skiptið varði Gomes glæsilega og hélt Tottenham inni í leiknum. Síðasta færi leiksins fékk svo annar fyrrum leikmaður Tottenham, Steed Malbranque, en Gomes varði skot hans af öryggi. Staðan í hálfleik var því 2-0, Sunderland í vil.
Harry Redknapp ákvað að gera tvöfalda skiptingu strax í hálfleik og leggja allt í sölurnar til að reyna að ná stigum út úr þessari viðureign. Ekotto og Bentley fóru af velli og Kranjcar og Defoe komu inná í stað þeirra. Bale færði sig þá í vinstri bakvarðarstöðuna, Modric á vinstri kantinn, Eiður Smári á miðja miðjuna og Kranjcar á hægri kantinn. Síðari hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri, og ekki leið á löngu þar til Sunderland menn voru farnir að heimta vítaspyrnu. Strax á 49. mínútu vildi Campbell fá víti eftir að hann féll inni í teig en dómarinn var ekki á sama máli og leikurinn hélt áfram. Mínútu síðar munaði litlu að Defoe næði að jafna leikinn eftir að hann komst einn á móti Gordon í markinu en Gordon náði að verja skot hans með fótunum. Tottenham fékk svo hornspyrnu mínútu síðar og átti Modric góða fyrirgjöf fyrir markið á Bale sem skallaði á markið. En Gordon náði að vippa boltanum yfir með fingurgómunum. Þegar um 55. mínútur voru liðnar af leiknum átti Defoe ágætis færi en Gordon var enn á ný vel vakandi í markinu. En þegar um klukkustund var liðin af leiknum færðist fjör í leikinn. Fyrst munaði litlu að Tottenham næði að jafna en skot Modric fór beint á Gordon. Á hinum enda vallarins fengu Sunderland menn svo enn eina vítaspyrnuna eftir að Palacios braut á Myler innan vítateigs. Bent fór enn á ný á vítapunktinn og skaut nú í sama horn og í fyrsta vítinu. En enn og aftur varði Gomes skot hans og staðan því enn 2-0 Sunderland í vil. Einungis þremur mínútum síðar náðu Sunderland menn að koma boltanum í netið framhjá Gomes og í þetta skipti var það Anton Ferdinand. En dómari og línuvörður höfðu eithvað út á þetta mark að setja og því var það dæmt af. Staðan því enn 2-0. Á 71. mínútu leiksins gerði Harry síðustu skiptingu sína í leiknum þegar Crouch kom inná fyrir Pavlyuchenko. Og það tók Crouch ekki langan tíma að stimpla sig inn því strax í sinni fyrstu snertingu náði hann að skalla boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Kranjcar. Staðan orðin 2-1 og ekki öll von úti fyrir leikmenn Tottenham. En leikmenn Sunderland voru ekki á því að missa niður leikinn og lögðu allt í að skora annað mark. Bassong hreinsaði af marklínu eftir að Zenden kom boltanum framhjá Gomes og stuttu síðar munaði litlu að Jones næði að skalla í netið. En á 85. mínútu tókst þeim ætlunarverk sitt og gerðu út um leikinn með marki frá gömlu kempunni, Zenden. Henderson gaf fyrir markið þar sem Zenden þrumaði boltanum glæsilega í netið og staðan því orðin 3-1. Leikmenn Tottenham reyndu að sækja áfram en Sunderland menn vörðust vel og kræktu því í öll þrjú stigin í þessari viðureign. Tottenham féll því niður í 5.sætið þar sem Manchester City vann sinn leik og hafði sætaskipti við Tottenham.
Lið Spurs: Gomes, Walker, Kaboul, Bassong, Ekotto (Defoe), Bentley (Kranjcar), Palacios, Modric, Bale, Pavlyuchenko (Crouch), Guðjohnssen. Ónotaðir varamenn: Alnwick, Dervite, Livermore, Rose.
SAJ






