Tottenham tók á móti FC Twente í fyrsta heimaleik sínum í Meistaradeildinni. Gleðifréttir kvöldsins voru þær að Gomes var mættur aftur á milli stanganna en hans hefur verið sárt saknað. Og hann sýndi einmitt hvað í honum býr á upphafsmínútum leiksins er hann varði frábærlega með annarri hendinni þegar leikmaður Twente reyndi að vippa yfir hann. Eftir erfiðar upphafsmínútur náðu Tottenham menn tökum á leiknum og áttu góð færi sem þeim tókst þó ekki að koma í netið. Undir lok fyrri hálfleiks var brotið á Crouch innan vítateigs og dómarinn dæmdi víti. Van der Vaart steig á vítapunktinn fullur sjálfstraust eftir að hafa skorað úr víti gegn Wolves um daginn. En í þetta skiptið varði markvörður Twente skotið frá honum og staðan var jöfn í hálfleik. En Van der Vaart bætti fyrir það í síðari hálfleik eftir aðeins tveggja mínútna leik. Crouch skallaði boltann fyrir Van der Vaart inni í teig og hann þrumaði í netið. Stuttu síðar bættu Tottenham menn öðru marki við en það skoraði Pavlyuchenko úr vítaspyrnu sem dæmd var þegar Bale var felldur inni í teig. Staðan því orðin 2-0 fyrir Tottenham. Á 55. mínútu náðu Twente menn að minnka muninn með marki frá Chadli eftir klaufaskap í vörn Tottenham. Stuttu síðar fékk Van der Vaart reisupassann eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald. En leikmenn Tottenham héldu haus og bættu við tveimur mörkum, öðru úr vítaspyrnu sem Pavlyuchenko tók og hitt skoraði Bale eftir misheppnaða skallasendingu leikmanns Twente. Leiknum lauk því með 4-1 sigri Tottenham.
Lið Spurs: Gomes, Hutton, King, Bassong, Ekotto, Van der Vaart, Huddlestone, Modric (Lennon 82), Bale, Crouch (Jenas 66), Pavlyuchenko (Keane 87). Ónotaðir varamenn: Cudicini, Corluka, Kranjcar, Palacios.






