Klúbbferð Tottenham – Blackpool

0
660

Örfá sæti laus – síðasti skráningardagur föstudaginn 8.apríl kl:12:00 

 

Tottenham klúbburinn á Íslandi efnir nú til hópferðar á leik liðsins í samvinnu við Express ferðir. Farið verður á leik Tottenham gegn Blackpool í Úrvalsdeildinni þann 7.maí næstkomandi. Nánari tilhögun ferðar:

 

Flogið verður út föstudaginn 6.maí frá Keflavík kl.7:00. Lent verður á Gatwick flugvelli ca. þremur tímum síðar og þaðan flytur rúta hópinn á hótelið Travelodge London City Road Hotel. Leikurinn fer fram laugardaginn 7.maí  og hefst kl.17:30 að staðartíma. Flogið verður aftur heim sunnudaginn 8. maí frá Gatwick kl. 20:25 að staðartíma en rúta mun sækja hópinn á hótelið. Verð á mann í tvíbýli er kr. 89.900 fyrir meðlimi Tottenham klúbbsins (aðrir greiða örlítið hærra gjald) og er innifalið í því, flug+skattar, hótel m. morgunmat, akstur til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og miði á leikinn. Allar nánari upplýsingar um ferðina og bókun á henni má finna hér.