Tottenham tók á móti AC Milan í síðari leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á White Hart Lane. Tottenham sigraði fyrri leikinn á San Siro 0-1 og því var við að búast að Milan menn leggðu allt í sölurnar í þessum leik sem þeir svo gerðu. Milan menn voru mun sterkari í fyrri hálfleik og sóttu stíft en vörn Tottenham hélt vel. Hættulegasta færi Milan manna kom á 26.mínútu þegar Gallas bjargaði á marklínu eftir skot frá Robinho. Leikurinn jafnaðist aðeins í síðari hálfleik og bæði lið áttu ágætis færi til að ná forystunni í leiknum. En hvorugu liðanna tókst að koma knettinum í net andstæðingsins og skildu þau því jöfn 0-0. Þessi úrslit þýða að Tottenham fer áfram í 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar. Þann 18.mars nk verður svo dregið um það hvaða lið mætast í næstu umferð.
Lið Spurs: Gomes, Corluka, Gallas, Dawson, Ekotto, Lennon, Sandro, Modric, Pienaar (Jenas 70), Van der Vaart (Bale 67), Crouch (Pavlyuchenko 83). Ónotaðir varamenn: Cudicini, King, Hutton, Defoe.






