Stórtap í Meistaradeildinni

0
630

Tottenham heimsótti Real Madrid á Santiago Bernabeu í fyrri viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikmenn Tottenham höfðu spilað góðan bolta og hræddust ekkert þótt andstæðingarnir væru gríðarsterkir. En rautt spjald, sem Peter Crouch nældi sér í á fyrsta korteri leiksins, þýddi það að Read Madrid var of stór biti fyrir Tottenham og fóru heimamenn með sigur af hólmi 4-0 með mörkum frá Adebayor(2), Di Maria og Ronaldo. Eru því vornir Tottenham um sigur í Meistaradeildinni orðnar ansi litlar. Seinni leikurinn er þó eftir og aldrei að vita hvað gerist þar eins og hefur sýnt sig áður í þessari keppni.

Lið Spurs: Gomes, Corluka (Bassong 80), Dawson, Gallas, Ekotto, Modric, Jenas, Sandro, Bale, Van der Vaart (Defoe 46), Crouch.

Ónotaðir varamenn: Cudicini, Huddlestone, Kranjcar, Lennon, Pavlyuchenko.