Gareth Bale PFA leikmaður ársins

0
727

Gareth Bale var í kvöld útnefndur leikmaður tímabilsins af leikmönnum deildarinnar. Er hann fjórði leikmaður Tottenham til að fá þessi verðlaun, en áður hafa þeir Pat Jennings ´75-´76, Clive Allen ´86-´87, David Ginola ´98-´99 unnið til þessa verðlauna.

Bale var einnig tilnefndur til verðlaunanna Besti ungi leikmaður deildarinnar, en þau hlaut Jack Wilshere.