Tottenham sigraði lið Úlfana á laugardaginn var á útivelli. Lokatölur voru 0-2.
Nýju leikmennirnir í liði Tottenham þeir Scott Parker og Emmanuel Adebayor stóðu fyrir sínu og sáu um fyrra mark leiksins.
Parker átti þá flotta sendingu á Adebayor sem skoraði af öryggi. Stuttu síðar innsiglaði Defoe sigurinn. Allt annað var að sjá til liðsins í þessum leik miðað við tvo fyrstu leikina á tímabilinu.
.
Van Der Vaart , Dawson , Sandro og Lennon voru t.d. ekki með í þessum leik vegna meiðsla, svo liðið á inni eitthvað.
Fyrstu tveim leikjum Tottenham vilja flestir gleyma sem fyrst, tapleikir gegn báðum Manchester liðunum. Fyrst tapaði Tottenham 3-0 gegn Manchester United á Old Trafford eftir að jafn var í hálfleik 0-0 og allt í járnum. Man Utd setti svo í gírinn í seinni hálfleik og voru yfirburðalið á vellinum, og uppskáru 3 mörk.
.
Svo tapaði lið Tottenham heima gegn stjörnupríddu liði Manchester City þar sem valinn maður er í hverju rúmi. Lokatölur í þeim leik voru 1-5 sem endurspeglaði ekki leikinn. Allt of stórt tap, þar sem allt gekk upp hjá Citymönnum.
Eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins er því liðið komið með 3. stig …. en miðað við gengi Tottenham gegn þessum sömu liðum í fyrra, vorum við þá með 2. stig í pokanum eftir sömu leiki á síðasta tímabili. Þannig að það er hægt að segja að framför sé þar á ferð.
BÓ






