Tottenham – Liverpool 4-0

0
738

Tottenham gjörsigraði lið Liverpool í dag á WHL , lokatölur urðu 4-0.
Mörk Tottenham skoruðu Modric , Defoe og Adebayor 2.

Harry Redknapp gerði 10 breytingar á liðinu sem byrjaði í Grikklandi á fimmtudaginn var. 
Byrjunarliðið var á þennan veg :
Friedel – Walker – King – Kaboul – Ekotto – Kranjcar – Modric – Parker – Bale – Defoe – Adaybayor.
Varamenn : Cudicini , Bassong , Corluka , Giovani , Livermore , Pavloychenko , Van der Vaart.

Tottenham liðið byrjaði með miklum látum og eftir einungis nokkrar mínútur fékk Adebayor gott færi en skotchans fór framhjá markinu.  Nokkrum mínútum síðar, eða á 7. mínútu skoraði Modric fyrsta mark leiksins og var af dýrari gerðinni.   Defoe fékk boltann fyrir utan teig, brotið var á honum en boltinn fór til Modric sem lét vaða og efst í markhornið fjær fór boltinn.  Virkilega fallegt mark.
Á 30. mínútu misstu Liverpool menn Charlie Adam útaf með rautt spjald,  hafði fengið tvö verskulduð gul spjöld og ekkert annað en að reka hann útaf.
Það sem eftir lifði hálfleiks stjórnuðu Tottenham menn leiknum án þess að fá afgerandi færi.

Í seinni hálfleik byrjaði lið Tottenham af sama krafti og hafði einkennt liðið í fyrri hálfleik.  Á 63. mínútu fékk Martin Skrtel varnarmaður Liverpool sína aðra áminningu og þar með reisupassan og Liverpool menn því tveimur færri á vellinum.
Þess má til gamans geta að hann fékk báðar áminningarnar eftir baráttu við G.Bale.
Aðeins þremur mínútum eftir brottrekstur Skrtel kom annað mark Tottenham.  VdV átti þá fína sendingu inn fyrir vörn Liverpool sem var ansi þunnskipuð og Defoe var kominn einn í gegn,  Enrique náði samt Defoe við vítateigslínuna, en Defoe snéri laglega á hann og skoraði með góðu skoti á nærstöngina , 2-0.
adebayor_a_fagna.jpgAðeins þremur mínútum síðar gerði Tottenham útum leikinn, Defoe átti þá skot fyrir utan teig sem Reina markvörður Liverpool varði en missti boltann frá sér Adebayor var fljótur að átta sig og náði frákastinu, vippaði boltanum yfir Reina og setti boltann í netið… virkilega nett afgreiðsla.
Það sem eftir lifði leiks spilaði Tottenham bara á hálfum hraða og héldu bara boltanum.  Og þegar lítið var eftir af leiknum vann Ekotto boltann af leikmanni Liverpool á miðjum vallarhelming Liverpool manna og átti hnitmiðaða sendingu á fjær þar sem Adebayor var einn og óvaldaður.  Hann tók á móti knettinum og hamraði honum í netið ,  4-0 staðreynd og var þetta fjórði sigurleikur Tottenham í röð á Liverpool í deildinni.

Liðið spilaði mjög vel í þessum leik og áttu sigurinn svo sannarlega skilið.  Liverpool auðvitað misstu mann útaf á 30. mínútu
en fram að því hafði Tottenham verið betra liðið á vellinum.  Eftir að Liverpool missti annan leikmann af velli áttu þeir aldrei tækifæri og ógnuðu marki Tottenham lítið sem ekkert.

Nýju mennirnir Adebayor og Parker líta mjög vel út og virðast passa vel inn í liðið.

Gef Adebayor mitt atkvæði sem maður leiksins.