Knattspyrnuskóli Tottenham

0
789

Breiðablik og Tottenham Hotspur FC hafa gert með sér samkomulag um rekstur knattspyrnuskóla fyrir stráka og stelpur á aldrinum 11 – 16 ára (3. – 5. flokkur) fædd 1996-2001 annað árið í röð.
Breiðablik er fyrsta félagið í Evrópu sem kynnir knattspyrnuskóla Tottenham Hotspur til leiks. Yngri flokka starf þeirra er talið vera eitt það besta á Bretlandseyjum í dag og hefur tekið stórstígum framförum undanfarin 10 ár. Vert er að taka fram að þeir þjálfarar sem koma til landsins í sumar eru starfandi yngri flokka þjálfarar hjá Tottenham Hotspur og til þeirra eru gerðar mikla kröfur varðandi menntun innan knattspyrnufræðanna. Einnig munu okkar hæfu þjálfarar starfa á námskeiðunum.
Fjögur námskeið verða haldin. Ákveðið hefur verið að takmarka fjöldann á hvoru námskeiði við 80 iðkendur þar sem þjálfarar Tottenham Hotspur vilja vinna með smærri hópa til að sinna einstaklingum eins og best verður á kosið.
Mikil ánægja var með skólann í fyrra og því ákveðið að halda samstarfinu áfram.


Skráning hefst þann 15.desember.

Skráning á tottenhamskolinn@gmail.com

Afhending gjafabréfa verður í Smáranum fimmtudaginn 15. des. og mánudaginn 19. des. milli kl. 18:00 og 20:00.
Þeir sem óska eftir því að dreifa greiðslum á kreditkort þurfa að mæta í Smárann fimmtudaginn 15. des. eða mánudaginn 19. des. milli kl. 18:00-20:00.http://www.breidablik.is/knattspyrna/knattspyrnuskoli_tottenham/