Tottenham hefur lokið leik í Evrópudeildinni

0
665

Tottenham lék á fimmtudaginn var síðasta leik sinn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og var leikið á útivelli gegn Írska liðinu Shamrock Rovers.  Tottenham vann leikinn 0-4 , en þrátt fyrir það komst liðið ekki áfram í 32 – liða úrslit keppninnar.  Tottenham þurfti að vinna Shamrock á fimmtudaginn og treysta á að PAOK myndi sigra Rússneska liðið Rubin Kazan ásamt því að vinna um 5 marka mun sem Rubin Kazan átti á Tottenham. 

Lengi vel leit út fyrir að þetta væri möguleiki ,  þar sem Tottenham var yfir í hálfleik 0-3 og á sama tíma var PAOK yfir í sínum leik og leikmenn Rubin Kazan einum færri. Það endaði þó á því að Rubin Kazan jafnaði og þannig endaði sá leikur og Tottenham þ.a.l. úr leik.  Mörk Tottenham á fimmtudaginn skoruðu , Pienaar , Townsend , Defoe og Kane.